Stefnuskrá Samfylkingarinnar á Hornafirði
Ágæti kjósandi!
Grunngildið í stefnu jafnaðarmanna um allan heim er að velferð, öryggi og jöfn tækifæri séu forsendur hagsældar. Norrænt velferðarsamfélag er enda sú þjóðfélagsgerð, sem hvað best hefur staðist tímans tönn og efnahagsleg áföll. Í kjölfar efnahagslegra áfalla er brýnasta verkefnið að verja velferðarsamfélagið. Jafnaðarmönnum er best treystandi til þess.
Skylda þeirra sem falið er að stýra okkar sameiginlega heimili er mikil. Velferð fjölskyldunnar, menntun barna okkar, heilbrigði, félagslegt öryggi, jafnræði íbúanna og virkur réttur til að hafa áhrif á okkar nánasta umhverfi og samfélag, eru atriði sem skipta miklu í okkar lífi. Í nútímasamfélagi eru gerðar ríkar kröfur um samstarf og samvinnu um uppbyggingu og rekstur sveitarfélagsins okkar. Við ætlum að stjórna sveitarfélaginu með samráði og í samvinnu við íbúana. Samfylkingin leggur hér fram, með skýrum og afdráttarlausum hætti, stefnumál sín og áherslur við stjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar á komandi kjörtímabili.
Við leggjum höfuðáherslu á að:
- Standa vörð um velferðina í samfélaginu
- Standa vörð um menntun og uppeldi barna okkar á öllum skólastigum
- Standa vörð um ábyrgan og traustan rekstur sveitarfélagsins
Frambjóðendur Samfylkingarinnar
Atvinnumál
Ábyrgð sveitarfélagsins í atvinnumálum felst í því að skapa aðstæður og forsendur fyrir þróun og eflingu atvinnulífs. Grundvöllur byggðar í sveitarfélaginu er þróttmikið og fjölbreytt atvinnulíf. Til að treysta þann grundvöll leggur Samfylkingin áherslu á eftirfarandi:
- Nauðsynlegt er að styrkja stoðir atvinnulífsins, halda áfram að fjölga atvinnutækifærum og auka fjölbreytnina í atvinnulífi svæðisins.
- Mikilvægt er að sveitarfélagið leitist við að tryggja aðstöðu fyrir þá, sem vilja setja upp nýja atvinnustarfsemi á svæðinu.
- Sjávarútvegur og landbúnaður eru grunnatvinnuvegir í sveitarfélaginu. Þessum greinum þarf að hlúa að til að stuðla að framþróun og framleiðniaukningu.
- Ferðaþjónustan er einn af burðarásum atvinnulífs á svæðinu og mikilvægt er að fjölga heilsársstörfum í greininni.
- Grípa verður þau fjölmörgu tækifæri sem skapast í tengslum við Vatnajökulsþjóðgarð.
- Í markaðssetningu fyrir svæðið er brýnt að leggja áherslu á greiðar samgöngur allt árið um kring.
- Áfram verði hlúð að stuðningsneti atvinnulífs í sveitarfélaginu með samvinnu við Matís, Háskólasetur, Nýsköpunarmiðstöð og fleiri stofnanir.
- Höfnin er lífæð atvinnulífsins. Tryggja verður áframhaldandi traustan rekstur hafnarinnar m.a. til þess að hún sé í stakk búin að bregðast við breyttum þörfum notenda.
- Áframhaldandi stuðningur við atvinnu – og rannsóknarsjóð sveitarfélagsins er mikilvægur með það að markmiði að fjölga atvinnutækifærum.
Fræðslumál
Samfylkingin á Hornafirði hefur það að markmiði að íbúar sveitarfélagsins búi við bestu mögulegu þjónustu og fjölbreytni á sviði fræðslumála. Það viljum við tryggja með því að:
- Ytri aðstæður leik – og grunnskóla verði ætíð eins og best gerist hvað varðar aðbúnað nemenda og starfsfólks.
- Mikilvægt er að góð samvinna sé áfram á milli skólastiga með það að markmiði að auðvelda nemendum sem mest skólavistina.
- Áhersla verði lögð á að efla innra starf leik- og grunnskóla enn frekar og þar verði einstaklingurinn í fyrirrúmi.
- Lögð er áhersla á að haft sé víðtækt samráð við foreldra og starfsfólk skóla um þróun skólastarfs.
- Haldið verði áfram með skoðun á rekstrarfyrirkomulagi leik- og grunnskóla með það að leiðarljósi að tryggja metnaðarfullt faglegt starf og hagkvæman rekstur.
- Fræðsla og aðlögun nýrra nemenda og aðstandenda þeirra verði eins góð og mögulegt er.
- Tryggja áframhaldandi góðan rekstur mötuneyta skólanna. Mikilvægt er að lýðheilsumarkmið um hollustu og heilbrigði séu höfð í fyrirrúmi.
- Skólaakstur nemenda úr dreifbýli verði skipulagður með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.
- Kostnaði fjölskyldna vegna skólagöngu barna og unglinga verði haldið í lágmarki.
- Tónskólinn verði efldur og styrktur, m.a. með því að endurbætur á og við Sindrabæ verði vandaðar og eftir þörfum Tónskólans.
- Samfylkingin vill efla Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu enn frekar, t.d. með uppbyggingu námsleiða sem tengjast Vatnajökulsþjóðgarði.
Velferðar – og fjölskyldumál
Velferðar– og fjölskyldumál eru stór málaflokkur í rekstri sveitarfélagsins og undir hann falla; íþrótta -, æskulýðs – og tómstundamál, málefni eldri borgara, málefni nýrra íbúa, heilbrigðismál og málefni fatlaðra.
Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags. Velferð hennar er því grundvöllur heilbrigðs samfélags. Að standa vörð um velferðarsamfélagið er rauði þráðurinn í stefnu jafnaðarmanna.
Íþrótta -, æskulýðs – og tómstundamál
Fjölbreytt æskulýðs – og tómstundastarf sem og öflugt íþróttalíf eru lykilatriði þegar fólk velur sér búsetu. Sveitarfélaginu ber að vinna markvisst að forvörnum í þágu ungmenna. Því leggjum við áherslu á eftirfarandi:
- Markvisst forvarnarstarf verði stóraukið í sveitarfélaginu. Þetta verði gert í víðtæku samstarfi skóla, íþrótta- og tómstundafélaga, foreldra, fag- og forvarnaraðila, lögreglu og bæjaryfirvalda.
- Mikilvægt er að allir eigi kost á því að njóta þess tómstundastarfs sem samfélagið hefur upp á að bjóða óháð efnahag.
- Tómstundakortin verði fest í sessi og þróuð í samstarfi við íþrótta – og félagasamtök. Markmiðið verði að halda kostnaði fjölskyldna í lágmarki.
- Áfram verði stutt myndarlega við íþrótta – og félagasamtök í sveitarfélaginu.
- Að lokið verði við uppbyggingu gervigras – og körfuknattleiksvallar á útisvæði.
- Að íþróttamannvirki fái eðlilega umhirðu og viðhald og skoðaðar verði leiðir til að nýta þau sem best.
- Að farið verði í þarfagreiningu á tengibyggingu milli sundlaugar og íþróttahúss.
- Að stutt verði við starfsemi Miðgarðs og gengið frá útisvæði í kringum húsið.
- Að ungmennaráð festist í sessi og eflist.
Málefni eldri borgara
Grundvallarsjónarmið Samfylkingarinnar í málefnum aldraðra er virðing fyrir sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétti. Það viljum við tryggja með því að:
- Lögð verði áfram áhersla á að stuðla að sjálfstæðri búsetu aldraðra eins lengi og þess er kostur. Það verði m.a. gert með öflugri heimahjúkrun, heimaþjónustu, dagvistarúrræðum og hvíldarinnlögnum á hjúkrunardeild.
- Tryggja aðgengi eldri íbúa að starfsmanni félagsmiðstöðvar.
- Að eldri íbúar geti fengið heimsendan mat alla daga vikunnar allan ársins hring.
- Efla dagvistina enn frekar og að starfið verði skipulagt með þarfir allra í huga.
- Stefnumótun í málefnum aldraðra verði ávallt unnin í nánu samráði og samstarfi við Félag eldri íbúa á Hornafirði.
- Tryggja áframhaldandi forræði sveitarfélagsins yfir málaflokknum.
Málefni nýrra íbúa
Verkefni sveitarfélagsins í málefnum nýrra íbúa er fyrst og fremst að tryggja að allir íbúar samfélagsins njóti jafnra tækifæra, verði virkir þátttakendur í samfélaginu og á sem flestum sviðum mannlífs. Þess vegna leggur Samfylkingin áherslu á eftirfarandi:
- Staðið verði myndarlega að móttöku nýrra íbúa í sveitarfélaginu. Það verði gert með sérstökum tengilið hjá sveitarfélaginu og með gerð upplýsingaefnis á nokkrum tungumálum um þjónustu í sveitarfélaginu.
- Auka samstarf atvinnulífs og sveitarfélags þegar kemur að móttöku nýrra íbúa.
- Efla túlkaþjónustu og auka nýtingu fjartúlkaþjónustu.
- Leita leiða til að þýða upplýsingaefni til foreldra barna nýrra íbúa.
- Þjóðadagurinn verði haldinn reglulega.
Heilbrigðismál og málefni fatlaðra
Samfylkingin vill öryggi og fagmennsku í heilbrigðismálum og þess vegna segjum við:
- Grundvöllur góðrar heilbrigðisþjónustu er vel menntað og hæft starfsfólk. Samfylkingin ætlar að standa vörð um þann mannauð.
- Forgangsverkefni í heilbrigðismálum er að verja þá grunnþjónustu sem allir íbúar eiga rétt á og að tryggja áframhaldandi forræði sveitarfélagsins á málaflokknum.
- Að stöðugleiki sé í læknamálum heilbrigðisstofnunarinnar.
- Samfylkingin vill kanna frekari möguleika á samstarfi við aðrar heilbrigðisstofnanir sem leiðir til aukinnar sérfræðiþjónustu og hagræðingar í rekstri.
- Að samstarf milli heilbrigðisstofnunarinnar og skólanna verði eflt eins og kostur er.
- Að öryggiskerfi verði komið upp í íbúðum fyrir aldraða í eigu sveitarfélagsins.
- Við flutning á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga verður að tryggja óskerta þjónustu, nægjanlegt fjármagn og áframhaldandi forræði sveitarfélagsins á málaflokknum.
- Að farið verði yfir ferðaþjónusta fatlaðra og hún verði efld með kaupum á sérútbúnum bíl.
- Áfram verði stutt við starfsendurhæfingu á Hornafirði.
Umhverfis – og skipulagsmál og samgöngur
Umhverfis – og skipulagsmál verða sífellt fyrirferðarmeiri í allri stjórnsýslu sveitarféalagsins og mikilvægt er að ákvarðanataka sé vönduð, gegnsæ og unnin í samráði við íbúa og hagsmunaaðila. Umhverfissjónarmið leika sífellt stærra hlutverk í skipulagsmálum og þess vegna vill Samfylkingin sameina umhverfisnefnd og skipulagsnefnd á kjörtímabilinu. Samgöngumál eru samofin þessum málaflokkum. Stytting vegalengda innan sveitarfélagsins og góðar samgöngur eru forsenda þess að gera sveitarfélagið að einu búsetu– og atvinnusvæði.
Skipulagsmál
Samfylkingin vill markvissar aðgerðir í skipulagsmálum og að litið verði til framtíðar við alla stefnumörkun í málaflokknum:
- Þegar verði hafin vinna við gerð nýs aðalskipulags fyrir sveitarfélagið þar sem samráð við íbúa, atvinnulíf og félagasamtök verður haft að leiðarljósi.
- Stefnumótun í skipulagsmálum þarf að vera í stöðugri endurskoðun. Þarfir einstaklinga og atvinnulífs eru breytilegar og því þarf aðalskipulag að vera sveigjanlegt um leið og það markar stefnu til framtíðar.
- Mikilvægt er að þarfir fjölskyldna verði hafðar að leiðarljósi við skipulagsmál í sveitarfélaginu.
- Huga þarf að blandaðri byggð þegar kemur að skipulagi nýrra byggða á Höfn þannig að úrval lóða standi fólki til boða.
- Unnið verði að bættu aðgengi að mannvirkjum sveitarfélagsins.
- Lokið verði við gerð nýs deiliskipulags á miðbæjarsvæði.
Umhverfismál
Samfylkingin vill gera sveitarfélagið að fyrirmyndarsamfélagi hvað varðar umgengni og snyrtimennsku:
- Mikið hefur áunnist í flokkun á sorpi. Nauðsynlegt er að taka skrefið til fulls með flokkun á hörðu plasti og gleri.
- Nauðsynlegt er að efna til kynningarátaks meðal almennings til þess að auka áhuga fólks og efla vitund um mikilvægi endurvinnslu.
- Auðvelda þarf heimilum að koma frá sér endurvinnanlegu sorpi. Kannaðir verði kostir þess að bjóða upp á „grænar tunnur“ fyrir íbúa.
- Setja flokkun á sorpi og umhverfisvernd í sveitarfélaginu í samhengi við Vatnajökulsþjóðgarð.
- Vinna þarf áfram með fráveitumál í sveitarfélaginu.
- Mikilvægt er að halda áfram að snyrta og fegra umhverfi sveitarfélagsins og hvetja einstaklinga og fyrirtæki til hins sama.
- Auka þarf fjölda almenningssnyrtinga í sveitarfélaginu öllu.
- Að ráðist verði í endurskipulagningu og viðhald gangstétta og göngustíga.
Samgöngur
Samfylkingin vill markvissar aðgerðir í samgöngumálum:
- Stytting vegalengda innan sveitarfélagsins er mikið hagsmunamál fyrir íbúana og í þeim efnum er bygging brúar yfir Hornafjarðarfljótin forgangsverkefni sem ekki þolir bið. Þrýst verður á fjárveitingavaldið og Vegagerðina um undirbúning og framkvæmdir.
- Göng undir Lónsheiði eru framtíðarlausn að vegstæði fyrir þjóðveg 1. Áfram verði unnið að undirbúningi verkefnisins hjá sveitarfélaginu og þrýst á fjárveitingavaldið og Vegagerðina um undirbúning og framkvæmdir.
- Einbreiðar brýr tilheyra fortíðinni. Þrýst verði á Vegagerðina að gera átak í að fækka þeim sem fyrst.
- Þungaflutningar eiga ekki heima í námunda við starfssvæði barnanna okkar. Áfram verði því unnið að færslu þjóðbrautar frá íþrótta- og skólasvæði í samvinnu við Vegagerðina.
- Flugvöllurinn er ein af lífæðum sveitarfélagsins, ekki síst vegna sjúkraflugs. Standa verður vörð um flugvöllinn og starfsemi hans.
- Hugað verði að auknu umferðaröryggi í sveitarfélaginu, ekki síst í íbúðahverfum á Höfn.
- Að lögð verði áhersla á uppbyggingu gang- og hjólreiðastíga innan sveitarfélagsins til að íbúar geti með góðu móti komist í snertingu við náttúruna.
Menningarmál
Menningin er einn af hornsteinum hvers samfélags og þess vegna vill Samfylkingin standa vörð um og stuðla að kynningu á öllu sem skapar og dregur fram sérstöðu mannlífs og lista í Austur-Skaftafellssýslu:
- Staðinn verði vörður um grunnþjónustu í menningarstarfsemi svo sem rekstur bókasafns.
- Skipulag safnamála verði endurskoðað á kjörtímabilinu.
- Samvinna Jöklasýningar og Vatnajökulsþjóðgarðs verði aukin og í framtíðinni verði Jöklasýningin hluti Vatnajökulsþjóðgarðs.
- Safn Svavars Guðnasonar verði hýst í varanlegum sýningarsal.
- Áfram verði unnið að hugmyndinni Hafnarvík – Heppa, t.a.m. verði Miklagarði fundið tekjuskapandi hlutverk og kannaðir kostir þess að koma Gömlubúð aftur á hafnarsvæðið.
- Menningarmiðstöð Hornafjarðar vinni með Vatnajökulsþjóðgarði við að gera byggðasöguna sýnilega, t.d. á upplýsingaskiltum við innkomuleiðir í þjóðgarðinn.
- Sveitarfélagið haldi áfram að bjóða listamönnum upp á vinnuaðstöðu.
- Treysta fjölmenningarhátíð í sessi með breiðri aðkomu íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja.
Stjórnsýslan
Samfylkingin leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórn, skilvirka stjórnsýslu, jafnræði, öflugt upplýsingastreymi til íbúanna og valddreifingu í stjórnkerfinu:
- Lögð er áhersla á að dreifa valdi og ábyrgð sveitarstjórnarmanna í stjórnkerfinu.
- Tryggja verður gegnsæi í ákvarðanatöku sveitarfélagsins.
- Samráð og samvinna milli sveitarstjórnar, íbúa og hagmunaaðila eru lykilatriði í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
- Leita verður leiða til þess að efla upplýsingastreymi frá sveitarfélaginu til íbúa.
- Við fyrirhugaðar breytingar stjórnvalda á skipan sveitarstjórnarstigsins, þar sem markmiðið er stórfelld fækkun sveitarfélaga, verður að tryggja að þjónustustig sveitarfélagsins skerðist ekki.
- Á þessum tímapunkti telur Samfylkingin frekari sameiningu sveitarfélagsins við önnur sveitarfélög ekki tímabæra. Samfylkingin leggur hins vegar áherslu á að sveitarfélagið verði áfram virkur þátttakandi í samstarfi sveitarfélaga um þau mál þar sem ólík svæði hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta.


