Samfylkingin
Fjölskyldu og grillhátíð Samfylkingarinnar
Fjölskyldu og grillhátíð Samfylkingarinnar
Spjallað í kvöldkyrrðinni
Mynd 14 af 15
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15

Fjölmenni á fjölskyldu – og grillhátíð Samfylkingarinnar

Margt var um manninn á grillhátíð Samfylkingarinnar sem haldin var í kvöld á kosningamiðstöðinni að Hafnarbraut 34. Mica stóð vaktina við grillið og grillaði af stakri snilld dýrindis lambakjöt og pylsur.
Yngri kynslóðin lék sér af miklum móð í hoppukastala frá hinu sívinsæla hornfirska fyrirtæki Hopp ehf. Tíðin hefur sennilega verið óvenju góð hjá þeim upp á síðkastið. Fjöldi gesta var slíkur að frambjóðendur máttu hafa sig alla við svo allir fengju nú eitthvað að borða og færu saddir og sælir heim.

Þingmaður Samfylkingarinnar, Anna Margrét Guðjónsdóttir var mætt á staðinn, stóð vaktina í uppvaskinu og spjallaði við kjósendur í gríð og erg. Ragnar Arason og Sigurður Þorsteinsson tóku í nikkuna og spiluð nokkur vel valin lög fyrir gestina og féll það í góðan jarðveg. Var haft á orði að best hefði verið að henda upp harmonikkuballi.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar vilja þakka öllum sem lögðu leið sína á kosningamiðstöðina í kvöld og áttu með okkur þessa góðu kvöldstund.

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica