Í framboði til fjögurra ára
Af gefnu tilefni vill undirritaður taka það fram að hann hefur sagt starfi sínu við Grunnskóla Hornafjarðar lausu frá og með næsta hausti.
Þá hyggst undirritaður setjast á skólabekk á nýjan leik. Áður hafði undirritaður gefið út að hann hygðist ekki gefa kost á sér í þessum kosningum þar hann stefndi á nám í Háskóla Íslands. Það breyttist þegar undirritaður ákvað að flytjast ekki búferlum en halda við ákvörðun sína um að hefja háskólanám næsta haust. Þetta fyrirkomulag kallar óneitanlega á einhver ferðalög – sem eru reyndar ekki með öllu óþekkt hjá bæjarfulltrúum á Hornafirði – en það breytir ekki því að undirritaður ætlar sér að starfa að fullum krafti að málefnum sveitarfélagsins á vettvangi bæjarstjórnar næstu fjögur árin – búsettur á Hornafirði.
Árni Rúnar Þorvaldsson
Skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar



