Samfylkingin
Árni Guðrun og Matthildur
Matthildur, Árni og Guðrún

Höldum áfram

Allir geta búið til fallegar stefnuskrár. Eina sem þarf til þess er góð tölva og einhver sem nennir að skrifa. En að framfylgja því sem sett er fram í stefnuskrá er ekki öllum gefið. Það krefst vinnusemi, áræðis, útsjónarsemi og samstarfsvilja.

Í sveitarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum lagði Samfylkingin á Hornafirði mikla áherslu á málefni fjölskyldunnar og talaði fyrst framboða um leiðir til þess að lækka þátttökukostnað fjölskyldna í tómstundastarfi barna og unglinga. Þá lagði Samfylkingin mikla áherslu á samráð og samstarf við bæjarbúa við ákvarðanatöku og úrvinnslu mála hjá sveitarfélaginu. Að ábyrgum rekstri sveitarfélagsins meðtöldum má segja að þetta hafi verið leiðarljós fulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Hornafjarðar á kjörtímabilinu.

Hagur fjölskyldunnar – leiðarljós Samfylkingarinnar
Þessi leiðarljós hafi reynst Samfylkingunni farsæl í bæjarstjórn – og þar með samfélaginu öllu. Unnið hefur verið markvisst að málefnum fjölskyldunnar. Ný fjölskyldustefna var samþykkt þar sem leikskólagjöld voru lækkuð um 10%, systkinaafsláttur var aukinn upp í 50% fyrir annað barn, frítt fyrir þriðja barn og ákveðið var að tengja afsláttinn á milli skólastiga. Einnig voru tekin upp tómstundakort fyrir öll börn á aldrinum 6 – 18 ára að upphæð 10.000 kr. Með þessum ákvörðunum – og fleirum – var mörkuð stefna í þágu fjölskyldunnar. Þetta er sú stefna sem Samfylkingin mun halda áfram að vinna að á næsta kjörtímabili – fáum við umboð til þess.

Virkt samráð og samvinna við almenning
Á kjörtímabilinu hafa stórar ákvarðanir verið teknar – t.a.m. í skólamálum um sameiningu grunnskólans og flutning skólahalds á Höfn – án þess að upp hafi komið stór ágreiningsefni. Þetta er til marks um að leiðarljós Samfylkingarinnar um samráð og samvinnu hefur verið virt. Á næsta kjörtímabili ætlar Samfylkingin að halda áfram á þeirri leið sem mörkuð hefur verið – að leita fleiri leiða til þess að almenningur geti með virkum hætti haft áhrif á ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Virkt lýðræði skilar okkur öllum betra samfélagi.

Verjum þjónustuna og velferðina
Hátt framkvæmdastig og  sterk fjárhagsstaða sveitarfélagsins hefur vakið eftirtekt á landsvísu. Íbúar á Hornafirði þurfa ekki að hafa áhyggjur af erfiðri skuldastöðu, íþyngjandi leigusamningum og erfiðri rekstrarstöðu – ólíkt íbúum margra annarra sveitarfélaga. Sterk fjárhagsstaða er ein mikilvægasta forsenda þess að hægt sé að verja þjónustustigið í sveitarfélaginu og velferðina. Þess vegna er það eitt af meginmarkmiðum Samfylkingarinnar á næsta kjörtímabili að verja sterka fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.

Gloprum ekki niður ávinningi
Samfylkingin hefur lagt spilin á borðið. Kjósendur vita fyrir hvað við stöndum. Það sýna verkin. Í bæjarstjórn ætlum við að halda áfram að vinna með hagsmuni fjölskyldna að leiðarljósi, gæta að  samráði við almenning og tryggja trausta fjárhagsstöðu til framtíðar. Þetta er sá grunnu sem Samfylkingin mun byggja ákvarðanir sínar á.  Þær framfarir sem hafa orðið í málefnum fjölskyldunnar geta horfið jafn skjótt og þær urðu að veruleika ef við gætum ekki að okkur. Sterk fjárhagsstaða getur líka horfið miklu hraðar en hún var byggð upp. Þessar jákvæðu hliðar í starfi sveitarfélagsins ber að verja og hlúa að. Það er best gert með því að kjósa Samfylkinguna laugardaginn 29. maí.

Árni Rúnar Þorvaldsson
Guðrún Ingimundardóttir
Matthildur Ásmundardóttir
Höf. skipa fyrstu þrjú sætin á lista Samfylkingarinnar

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica