Samfylkingin
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson

Fyrsta skólastigið

Leikskólinn er fyrsta skólastigið enda starfar hann eftir námskrá sem menntamálaráðuneytið setur honum. Að þessu leyti er enginn grundvallarmunur á leikskólum og grunnskólum.
Hvoru tveggja eru fyrst og fremst mennta – og uppeldisstofnanir. Um þetta er ekki deilt lengur. Ákveðinn munur er þó á fjármögnun skólastiganna. Grunnskólinn er alfarið rekinn með framlögum úr sameiginlegum sjóðum bæjarbúa en leikskólinn er að hluta til rekinn með þjónustugjöldum. Hlutfall þjónustugjalda í rekstri leikskóla hefur hins vegar minnkað mikið á síðustu árum – hér á Hornafirði sem annars staðar.

Skiptar skoðanir
Nú eru fjögur ár liðin frá því þáverandi bæjarstjórn ákvað á síðasta fundi sínum að breyta fyrirkomulagi leikskólamála á Hornafirði. Ákveðið var að reknir skyldu tveir heildstæðir leikskólar í stað tveggja aldursskiptra leiksskóla. Ekki var samstaða um þessa ákvörðun á sínum tíma í bæjarstjórn. Í greinum frambjóðenda fyrir þessar kosningar hefur komið fram að skiptar skoðanir hafa verið á lofti um tvískiptingu leikskólanna. Erfitt er að gera sér í hugarlund að margir muni tala fyrir því að reknir verði tveir heildstæðir grunnskólar í sveitarfélaginu með mismunandi stefnur og áherslur. Hinar skiptu skoðanir, sem frambjóðendur hafa bent á, lúta að því rekstrarfyrirkomulagi sem bæjarstjórn ákvað að koma á en enginn velkist í vafa um að á leikskólunum er unnið afar gott og metnaðarfullt starf.

Valkostir fyrir foreldra eitt markmiðanna
Yfirlýst markmið þessara breytinga var m.a. að veita foreldrum val um það á hvaða leikskóla börn þeirra færu á. Þeir áttu að geta valið á milli tveggja leikskóla með ólíkar stefnur og áherslur og með þessu átti líka að koma í veg fyrir að nemendur þyrftu að skipta um leikskóla á ákveðnum tímapunkti. Val á milli ólíkra leikskóla er því grunnforsenda þeirrar tvískiptingar sem nú er við lýði.

Heildstætt endurmat
Samfylkingin telur tímabært að meta reynsluna af þessu fyrirkomulagi í leikskólamálum sveitarfélagsins af ýmsum ástæðum. Kanna verður hvort þau markmið sem lagt var upp með í upphafi – t.d. aukið val foreldra – hafi gengið eftir. Meta verður stöðuna út frá fækkun nemenda. Einnig voru samþykkt ný lög um leikskóla fyrir skemmstu og meta þarf hvernig best verður brugðist við þeim kröfum sem þar eru settar fram og hvaða áhrif þær kunna að hafa á starf leikskólanna. Að mati Samfylkingarinnar er því orðið tímabært að meta með heildstæðum hætti hvernig fyrirkomulagi leikskólamála verður best fyrirkomið í sveitarfélaginu með almannahagsmuni að leiðarljósi.

 

Árni Rúnar Þorvaldsson

Skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica