Samfylkingin
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson

Glópska eða skynsemi meirihlutans – er kosið um það?

Í íþróttakeppni er oft talað um sigurliðið hafi haft heppnina með sér. Stundum er líka sagt að til þess að vinna þurfi maður að vera heppinn.

Önnur tegund heppni hefur verið nefnd glópalán en skv. íslenskri orðabók Máls og Menningar frá 1993 merkir orðið glópur; rati, afglapi kjáni eða flóni. En þetta er orð sem Sjálfstæðisflokknum á Hornafirði er tamt að nota um fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Heppni dugar þó ekki ein og sér til þess að ná árangri. Í íþróttum er nefnilega líka sagt að lið búi sér til sína eigin heppni – með vinnusemi, dugnaði og útsjónarsemi. Margar siguruppskriftir innihalda því heppni, lukku, gæfu, grís eða glópalán – allt eftir því hvað menn vilja láta það heita – en hætt er við því að uppskriftir þar sem þetta er eina innihaldið verði heldur næringarsnauðar og bragðlitlar.

Þegar sýndarveruleikinn sem kokkaður var uppúr uppskriftum frjálshyggjumanna Sjálfstæðisflokksins riðaði til falls á haustdögum 2008 stóðu mörg fyrirtæki og sveitarfélög uppi með veikar varnir. Sveitarfélagið Hornafjörður stóð þá að mörgu leyti í öfundsverðum sporum því ekki hafði verið eytt um efni fram, skuldir voru ekki íþyngjandi og rekstur hafði ekki þanist út. Allar kennitölur í rekstri sveitarfélagsins undanfarin ár bera með sér traustan efnahag og skynsaman rekstur. Jákvæð rekstrarniðurstaða, sterk eiginfjárstaða og öflugt sjóðstreymi er eitthvað sem öll sveitarfélög vilja státa af en fæst geta í núverandi ástandi – því miður.

Að ofansögðu hlýtur sú spurning að vakna hvort það var glópalán eða skynsemi sem veldur því að nú siglir sveitarfélagið nokkurn veginn lygnan sjó á meðan sum önnur eru í haugabrælu.  

Góðærið – glópalán?
Góð staða skýrist m.a af auknum tekjum í gegnum jöfnunarsjóð sveitarfélaga en flest sveitarfélög á landinu nutu ávaxtanna af góðærinu með auknum tekjum – sum með hærri útsvarstekjum en önnur með hærri framlögum úr jöfnunarsjóði. Það er hér með viðurkennt af undirrituðum að hann sjálfur – og aðrir bæjarfulltrúar meirihlutans – bjó ekki til auknar tekjur í gegnum jöfnunarsjóð. Það gerði hin lánadrifna efnahagsþensla sem að lokum leiddi til hrunsins á hausdögum 2008. Það var ekkert einsdæmi að tekjur sveitarfélaga jukust á hinum meinta góðæristíma. Flest sveitarfélög á landinu nutu aukinna tekna. Þannig hafa sennilega auknar tekjur allra sveitarfélaga verið glópalán – a.m.k. samkvæmt skilningi Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Hornafjarðar. Var þá góðærið bara glópalán?

Að spila vel úr góðri stöðu
Ef fallist er á að auknar tekjur þjóðfélagsins á gullaldarskeiði frjálshyggjunnar á Íslandi hafi verið glópalán, þá vaknar spurningin hvernig einstök sveitarfélög fóru að ráði sínu. Þegar það er skoðað kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós. Mörg sveitarfélög fóru frjálslega með, nýttu sér aðgang að ódýru lánsfé ótæpilega, framkvæmdu fram úr hófi og juku við reksturinn þannig að í kjölfar hrunsins varð rekstur þessara sveitarfélaga ekki í nokkru samræmi við raunveruleikann.

Þetta er ekki staðan á Hornafirði. Skynsamur og ábyrgur rekstur tryggir góða fjárhagsstöðu sveitarfélagsins – glópalán frjálshyggjunnar dugði ekki eitt og sér til þess. Eins og í íþróttakeppninni þá dugir ekki heppni ein og sér til sigurs – fleira þarf að koma til. Hvernig menn fara með sitt glópalán skilur á milli feigs og ófeigs.          

Árni Rúnar Þorvaldsson

Skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica