Samfylkingin
Árni ræðir við Rósu um Skeiðarárhlaupið
Árni ræðir við Rósu um Skeiðarárhlaupið
Mynd 1 af 2
1 2

Líf og fjör í kosningabaráttunni

 

Frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa verið á útopnu síðustu dagana við að koma stefnuskránni til kjósenda. Gengið er hús úr húsi og keyrt heim að bæjum í öllu sveitarfélaginu. Viðtökur eru mjög góðar og greinilegt að kjósendur leiða hugann sífellt meir að kosningunum næsta laugardag.

Mjög gaman er að sjá hversu mikið líf er í öllu sveitarfélaginu og mikið um að vera. Á ferð okkar um Öræfin sáum við m.a. fjölda Hornfirðinga taka þátt í fyrsta Skeiðarárhlaupinu, sem skipulagt var af Ríki Vatnajökuls og Vatnajökulsþjóðgarði. Góð þátttaka var í hlaupinu og vonandi að þetta framtak sé komið til að vera. Gaman er að greina frá því að Matthildur Ásmundardóttir hlaup 16 km. í hlaupinu sem og Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri og Guðrún Ingólfsdóttir, eiginkona hans. Bæjarstjóri ætti því að vera í góðu formi þegar hann hefur tekið út sína refsingu fyrir rauða spjaldið í fótboltanum fyrir skemmstu.

Fjöldi á jökli

Á ferð okkar sáum við líka að gríðarstór hópur var á ferð um svæðið og greinilegt að uppbygging fjallaferðamennsku á mikla möguleika í sveitarfélaginu. Bílaflotinn, sem við sáum við Sandfell, í tengslum við ferð Haralds Arnar Ólafssonar, pólfara upp á Hvannadalshnjúk hefði sómt sér vel í hvaða stórborg sem er.  Annar eins fjöldi var síðan á vegum Glacier Guides á jöklinum. Greinilegt er því á öllu að möguleikarnir til að byggja upp ferðamennsku utan háannatímans og það kemur til með að styrkja alla ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.

Fundur með eldri borgurum

Samfylkingin fundaði líka með eldri borgurum í Ekrunni í dag til þess að greina frá stefnumálum sínum og til þess að heyra sjónarmið þeirra varðandi rekstur sveitarfélagsins. Næsta miðvikudag verður haldinn fundur á kosningamiðstöðinni fyrir nýja íbúa á Hornfirði.

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica