Samfylkingin
Samfylkingin Hornafirði
Samfylkingin Hornafirði
Stefnuskrárgangan mikla heldur áfram
Mynd 1 af 2
1 2

Á döfinni hjá Samfylkingunni

Það styttist í kosningar. Ekki ber á öðru. Framboðin berjast við að koma stefnumálum sínum á framfæri við kjósendur og reyna að hitta sem flesta.
Stefnuskrár framboðanna hafa litið dagsins ljós og nú er það kjósenda að taka ákvörðun laugardaginn 29. maí.

Fundur með eldri borgurum

Samfylkingin boðar til opins fundar eldri borgurum mánudaginn 24. maí kl. 14:00 í Ekrunni. Þar fá eldri borgarar tækifæri til þess að heyra hjá frambjóðendum hver stefnumál Samfylkingarinnar í málefnum eldri borgara, sem og öðrum málaflokkum, eru til næstu fjögurra ára. Þar er líka kjörið tækifæri fyrir fundargesti til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við framjóðendur. Málefni eldri borgara skipta samfélagið miklu máli og Samfylkingin leggur mikla áherslu að vel sé staðið að þeim.

Fundur með nýjum íbúum

Haldinn verður upplýsinga – og kynningarfundur fyrir nýja íbúa á Hornafirði miðvikudaginn 26. maí kl. 18:00 í kosningamiðstöðinni að Hafnarbraut 34. Þá ætla frambjóðendur Samfylkingarinnar að kynna stefnumál sín fyrir nýjum íbúum, bæði málefni sem tengjast þeim beint sem og önnur stefnumál framboðsins.

Grillhátíð

Fimmtudaginn 27. maí kl. 19:00 mun Samfylkingin halda stóra grillhátíð við kosningamiðstöðina þar sem boðið verður upp á alls kyns góðgæti úr þeirri matarkistu, sem Sveitarfélagið Hornafjörður er. Allir eru velkomnir til að fá sér eitthvað gott að borða með frambjóðendum, ræða stefnumálin og málefni samfélagsins. Boðið verður upp á lifandi tónlist með matnum.

Stefnuskrárgangan mikla heldur áfram

Frambjóðendur Samfylkingarinnar halda áfram í dag og á morgun að bera stefnuskrá framboðsins í hús. Okkur hefur verið mjög vel tekið á ferðum okkar um sveitarfélagið og greinilegt að spennan fyrir kosningunum eykst frá degi til dags.

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica