Samfylkingin
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson

Strandgata 52, 735 Eskifirði – hvað er nú það?

Er nema von að fólk spyrji? En ef einhver vill vita, þá er þetta heimilisfang lögreglustjórans á Hornafirði. Birni Bjarnasyni, þáverandi dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, tókst að hrifsa lögreglustjórann frá Hornafirði og bola honum niður á Eskifirði – sannarlega afrek.

Á meðan kallað er eftir því að ráðherrar Samfylkingarinnar líti austur fyrir Ártúnsbrekkuna þá hljóta skilaboðin til ráðherra Sjálfstæðisflokksins – miðað við reynsluna – að vera þau að líta vinsamlegast ekki austur fyrir Ártúnsbrekkuna.

En í alvöru talað, væri ekki nær að lögreglustjórinn á Hornafirði væri staðsettur á Hornafirði? Best væri ef hann og framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs gætu deilt skrifstofuplássi – svona til að spara kostnað.

Árni Rúnar Þorvaldsson
Höf. skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica