Samfylkingin
Árni Rúnar Þorvaldsson
Árni Rúnar Þorvaldsson

Íslensk stjórnsýsla endurskipulögð

Endurreisn íslensks efnahags og samfélags felur í sér algjöra uppstokkun á stjórnsýslunni. Hún reyndist vanbúin til að takast á við þau stórkostlegu vandamál sem nýfrjálshyggjan skóp fyrir samfélagið. Engu er líkara en að yfirgripsmikil vanþekking hafi stýrt för við uppbyggingu stjórnsýslunnar á síðasta áratug. Þjóðfélagið sýpur nú seyðið af vanmáttugri stjórnsýslu frjálshyggjunnar og því er nú verið að endurskipuleggja íslenskt stjórnkerfi og stjórnsýslu frá grunni.

Sveitarfélögin ekki undanskilin

Skipan sveitarstjórnarmála er ekki undanskilin í endurskipulagningu stjórnsýslunnar. Samgöngu – og sveitarstjórnarráðuneytið hefur skipað fjögurra manna nefnd til að ræða og meta sameiningarkosti í hverjum landshluta. Þegar nefndin hefur lokið tillögugerð sinni verða tillögurnar lagðar fyrir landsþing eða aukalandsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Mun ráðherra í framhaldi af því leggja fyrir Alþingi áætlun um sameiningar fram til ársins 2014.

Samgöngu – og sveitastjórnarráðherra hefur látið hafa eftir sér að sveitarfélögin gætu orðið sautján talsins. Í dag eru þau tæplega áttatíu. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem jafnframt er bæjarstjóri á Ísafirði, hefur nefnt að þau gætu orðið sjö. Ef af þessu verður, er ljóst að verið er að leggja grunn að gjörbreyttu umhverfi íslenskra sveitarfélaga – þó ekki verði farið eftir ýtrustu tillögum

Staða Hornafjarðar

Kjörnir fulltrúar verða að vera meðvitaðir um að þessi vinna er í fullum gangi. Ný bæjarstjórn verður að móta sér skýra sýn um stöðu Sveitarfélagsins Hornafjarðar áður en fulltrúar hennar mæta til næsta landsþings Sambands sveitarfélaga sem væntanlega verður haldið næsta haust. Þetta eru stóru línurnar í sveitarstjórnarpólitík næstu ára.

Að tryggja og efla þjónustustigið í sveitarfélaginu verður að vera leiðarljós bæjarfulltrúa í þessari umræðu – að sveitarfélagið hafi burði til að sjá íbúunum fyrir þeirri þjónustu sem þeir eiga heimtingu á. Þetta er meginmarkmiðið. Spurningin sem bæjarstjórn verður að svara er því þessi; verður Sveitarfélagið Hornafjörður betur í stakk búið til að sinna sínum íbúum sem hluti af stærri heild eða með óbreyttu fyrirkomulagi, þ.e. án frekari sameininga?

Skýr sýn Samfylkingarinnar

Samfylkingin hefur markað sér skýra sýn í þessum málum fyrir komandi kjörtímabil. Við teljum frekari sameiningu við önnur sveitarfélög ekki tímabæra enda hafi ekki verið bent á neina augljósa kosti í þeim efnum. Við leggjum hins vegar áherslu á áframhaldandi gott samstarf við önnur svæði og sveitarfélög sem grundvallast á sameiginlegum hagsmunum.  

 

Árni Rúnar Þorvaldsson

Bæjarfulltrúi og skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica