Stefnuskrá Samfylkingarinnar komin á vefinn
Við opnun kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar sl. fimmtudag kynnti Samfylkingin stefnuskrá sína og áherslur á næsta kjörtímabili. Vinnan við stefnuskrána var opnuð upp á gátt þar sem öllum íbúum var gefið tækifæri til þess að koma að málefnavinnunni. Haldið var íbúaþing í tveimur hlutum þar sem fólki var skipt í hópa til þess að ræða málefni sveitarfélagsins og allir fengu tækifæri til þess að tjá sig um alla málaflokkana.
Afrakstur þessarar umfangsmiklu vinnu liggur nú fyrir. Frambjóðendur Samfylkingarinnar á Hornafirði hafa unnið úr þeim áhersluatriðum sem fram komu á íbúaþinginu og stefnuskrá okkar byggir á þeirri vinnu sem þar fór fram. Samfylkingin þakkar öllum þeim sem lögðu hönd á plóg og leggur hér með fram, með skýrum og afdráttarlausum hætti, stefnumál sín og áherslur við stjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar næstu fjögur árin. Við hvetjum alla til að kynna sér málin hér á vefnum en bendum jafnframt á að stefnuskránni verður dreift í öll hús í sveitarfélaginu fyrir kosningar.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar



