Samfylkingin
Kosningamiðstöð Samfylkingarinnar opnuð
Kosningamiðstöð Samfylkingarinnar opnuð
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Kosningamiðstöð Samfylkingarinnar opnuð

Fjölmenni var við opnun kosningamiðstöðvar Samfylkingarinnar að Hafnarbraut 34 fimmudagskvöldið 6. maí. Frambjóðendur buðu gesti velkomna og fluttu stuttar tölur.

Rætt var um málefni sveitarfélagsins og farið yfir helstu málefnin á vettvangi bæjarstjórnar nú um mundir. Stefnuskrá Samfylkingarinnar var kynnt fyrir gestum og verður hún gerð opinber hér á vefnum fljótlega. Stefnuskránni verður síðan dreift inn á hvert heimili í sveitarfélaginu enda leggur Samfylkingin mikið upp úr góðu upplýsingastreymi til kjósenda.

Kosningamiðstöðin verður næst opin sunnudaginn 9. maí frá kl. 14 – 16. Frambjóðendur á staðnum og heitt á könnunni. Samfylkingin hvetur alla til að kíkja við, ræða við frambjóðendur og kynna sér stefnumálin. Opnunartími í næstu viku nánar auglýstur síðar.

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica