Samfylkingin
Samfylkingin opnar kosningaskrifstofu
Fimmtudaginn 6. maí kl. 20:00 opnar Samfylkingin á Hornafirði kosningaskrifstofu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí.
Skrifstofan verður til húsa á Hafnarbraut 34, þar sem Handraðinn var áður. Gestur opnunarinnar verður Anna Margrét Guðjónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Húsið verður öllum opið og boðið verður upp á kaffiveitingar.
Á opnuninni verður stefnuskrá Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar kynnt. Þá gefst kjósendum tækifæri til þess að kynna sér leiðarljós Samfylkingarinnar í vinnu okkar fyrir sveitarfélagið og þær áherslur sem við ætlum okkur að vinna eftir á næsta kjörtímabil.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar



