Samfylkingin
Atvinnumálin tekin föstum tökum
Atvinnumálin tekin föstum tökum
Mynd 2 af 4
1 2 3 4

Stefnuskráin - afrakstur íbúaþings

 

Síðastliðinn miðvikudag hélt Samfylkingin á Hornafirði seinni hluta íbúaþings um þá málaflokka sem snúa að sveitarfélaginu. Á miðvikudaginn var rætt um atvinnumál, umhverfis – og skipulagsmál og stjórnsýsluna. Á fyrri hluta þingsins var fjallað um fræðslumál, menningarmál og velferðar – og fjölskyldumál. Íbúaþingið var haldið undir yfirskriftinni Stefnumót við kjósendur og það var öllum opið. Mæting var góð og umræður mjög líflegar.

Frambjóðendur  Samfylkingarinnar vinna nú hörðum höndum að því marki að fullgera stefnuskrá framboðsins fyrir kosningarnar í vor. Stefnuskráin mun að stórum hluta taka mið af þeirri vinnu sem fram fór á íbúaþinginu. Stefnuskráin verður lögð fram og kynnt innan skamms. Með þessu verklagi sýnir Samfylkingin það í verki að hún er tilbúin að hlusta á öll sjónarmið við stjórnun sveitarfélagsins og kallar eftir sjónarmiðum hins almenna kjósanda. Það er mikilvægur liður í farsælli stjórnun sveitarfélagsins – sameignar okkar – enda eru kjörnir fulltrúar á hverjum tíma einungis tímabundnir verktakar kjósenda.

Þessi viðhorf til samstarfs og samráðs hafa verið leiðarljós okkar í stjórnun sveitarfélagsins á því kjörtímabili sem nú er að ljúka og þau munu vera það áfram á næsta kjörtímabili.    

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica