Íbúaþingi framhaldið í kvöld
Atvinnumálin í brennidepli
Íbúaþing Samfylkingarinnar heldur áfram í dag, miðvikudaginn 28. apríl kl. 20:00 í húsi Afls við Víkurbraut. Fyrri hluti íbúaþingsins var haldinn sl. laugardag og heppnaðist mjög vel.
Þar var rætt um velferðar – og fjölskyldumál, fræðslumál og menningarmál. Í dag verður kastljósinu beint að atvinnumálum, umhverfis – og skipulagsmálum og stjórnsýslunni.
Í samtölum okkar við kjósendur höfum við orðið þess áskynja að fólk hefur mikinn áhuga á atvinnumálunum og það er málaflokkur, sem fólk leggur mikla áherslu á að framboðin – og þá bæjarstjórn að loknum kosningum – sinni af þunga. Fundurinn í kvöld er öllum opinn þannig að nú gefst þér, ágæti kjósandi, tækifæri til þess að ræða brýnustu mál samfélagsins milliliðalaust við frambjóðendur Samfylkingarinnar.
Frambjóðendur Samfylkingarinnar vonast til að eiga málefnaleg og lífleg skoðanaskipti við kjósendur á fundinum í kvöld og hvetja alla til að mæta.



