Samfylkingin
Samfylkingin_250410c
Samfylkingin_250410c
Málin skeggrædd (mynd xS)
Mynd 3 af 3
1 2 3

Málefnavinna og sundkempur

Málefnavinna Samfylkingarinnar er í fullum gangi þessa dagana. Kjósendum er boðið að taka þátt í þeirri vinnu með frambjóðendum Samfylkingarinnar á íbúaþingi sem frambjóðendur Samfylkingarinnar hafa boðað til.
Fyrri hluti þingsins fór fram sl. laugardag í húsi Afls. Seinni hlutinn fer fram nk. miðvikudag frá 20:00 – 22:00 á sama stað.

Á laugardaginn var fjallað um velferðar – og fjölskyldumál, fræðslumál og menningarmál en á miðvikudaginn verður rætt um atvinnumál, umhverfis – og skipulagsmál og stjórnsýsluna. Frambjóðendur Samfylkingarinnar vonast til að eiga áframhaldandi samtal við kjósendur um framfaramál samfélagsins.

Sundlaugin eins árs
Sumardaginn fyrsta var haldið upp á eins árs afmæli sundlaugarinnar. Þar var margt um manninn og gleðin við völd. Lúðrasveit Tónskólans skemmti gestum og gangandi og ungir iðkendur sunddeildarinnar sýndu tilþrif  í lauginni. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá jafn mikið af efnilegu tónlistar – og íþróttafólki samankomið á þessum skemmtilega degi til þess að skemmta okkur hinum. Ungir sundiðkendur öttu kappi við nokkra af frambjóðendum allra framboðanna í boðsundi. Óhætt er að segja að unga fólkið hafi leikið sér að frambjóðendum þó að brugðið hafi fyrir ágætum tilþrifum í hópi frambjóðenda. Sundgeta frambjóðendanna er vonandi í öfugu hlutfalli við pólitíska getu þeirra.

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica