Framboðslisti Samfylkingarinnar lagður fram
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 29. maí nk. eða eftir rétt rúmar níu vikur. Það styttist því verulega í að kosningabaráttan komist á fullt skrið og þeir framboðslistar sem kjósendum standa boða fara að líta dagsins ljós hver á fætur öðrum.
Skömmu eftir síðustu áramót hóf stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði formlegan undirbúning fyrir kosningarnar í vor. Á félagsfundi 18. febrúar var samþykkt að viðhafa uppstillingu við uppröðun á framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar. Samþykkt var að fela stjórn félagsins að skipa uppstillingarnefnd til þess að vinna að uppstillingunni og nú liggur afrakstur þeirrar vinnu fyrir. Því boðar Samfylkingin á Hornafirði nú til félagsfundar fimmtudaginn 25. mars nk. kl. 20:00 í húsi Afls við Víkurbraut. Meginefni fundarins verður að taka afstöðu til tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði hvetur alla félagsmenn til þessa mæta.
Stjórn Samfylkingarinnar á Hornafirði



