Frambjóðendur

Frambjóðendur Samfylkingarinnar á Hornafirði 2010

Árni Rúnar Þorvaldsson1. sæti
Árni Rúnar Þorvaldsson, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi

Kvæntur Ragnhildi Einarsdóttur, grunnskólakennara, og eigum við tvö börn. Við fluttumst til Hornafjarðar haustið 1999.

Á kjörtímabilinu hef ég gegnt embætti forseta bæjarstjórnar og verið formaður bæjarráðs. Einnig hef ég verið formaður byggingar – og skipulagsnefndar og var formaður heilbrigðis – og öldrunarráðs í tvö ár.

Ég hef komið mikið að félagsmálum þann tíma sem ég hef verið búsettur á Hornafirði. Var m.a. formaður knattspyrnudeildar Sindra um nokkurt skeið. Einnig var ég virkur í félagsmálum grunnskólakennara á landsvísu.

Stjórnmálin almennt eru aðaláhugamál mitt og svo hef ég gaman af því að lesa góðar bækur þegar tími gefst til. Ekki skemmir fyrir ef bækurnar fjalla um styrjaldir og pólitísk hjaðningavíg.

Ég legg mikla áherslu á áframhaldandi ábyrga stjórnun sveitarfélagsins. Í þeim efnahagsþrengingum sem nú ganga yfir þjóðina skiptir öllu máli að fjárhagur sveitarfélagsins hafi burði til þess að takast á við vandann.




Guðrún Ingimundardóttir2.sæti
Guðrún Ingimundardóttir, stuðningsfulltrúi og bæjarfulltrúi

Ég hef búið á Hornafirði síðan 1975. Sambýlismaður minn er Þórir Snorrason og við eigum sex börn og barnabörnin okkar eru 10 talsins.

Á kjörtímabilinu hef ég m.a. verið formaður menningar – og tómstundanefndar, varaformaður heilbrigðis – og öldrunarráðs og setið í svæðisráði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Ég hef sinnt ýmsum störfum í gegnum tíðina. Vann t.d. við umönnun aldraðra um 20 ára skeið og svo hef ég komið að ferðamálum og sinnt leiðsögn  og upplýsingagjöf til ferðamanna.

Áhugamálin eru mörg og ber hæst fjölskylduna, ferðalög og einnig að skoða landið okkar með augum ferðamannsins. Það hefur verið afar lærdómsríkt.

Mínar áherslur liggja í fjölskyldumálunum, menningarmálum og atvinnumálum með áherslu á að skila landinu betra til komandi kynslóða.




Matthildur Ásmundardóttir3. sæti
Matthildur Ásmundardóttir, 32 ára sjúkraþjálfari, mastersnemi í heilbrigðisvísindum og varabæjarfulltrúi.

Gift Hjálmari J. Sigurðssyni sjúkraþjálfara og eigum við tvö börn 4 og 6 ára. Ég er fædd og uppalin á Hornafirði og hef búið hér síðan 2003.

Á kjörtímabilinu hef ég gegnt formennsku í æskulýðs – og tómstundaráði, setið í menningar – og tómstundaráði, stýrt starfi vinnuhóps um mótun fjölskyldustefnu fyrir sveitarfélagið og tekið þátt í vinnu starfshóps um félagslíf ungmenna í sveitarfélaginu.

Helstu áhugamál mín eru hvers kyns hreyfing, útivist og ferðalög. Helstu áherslumál eru málefni tengd fjölskyldunni, lýðheilsu, forvörnum og velferðarmál í víðum skilningi.




Stephen Róbert Johnson4. sæti
Stephen Róbert Johnson, verkamaður og varabæjarfulltrúi

Kvæntur Herdísi Tryggvadóttur og eigum við þrjú börn. Ég hef búið á Hornafirði síðan 1979.

Á kjörtímabilinu hef ég setið í atvinnumálanefnd og umhverfisnefnd.

Ég er varaformaður í sjómannadeild Afls og er varamaður í stjórn félagsins. Einnig hef ég setið í samninganefndum fyrir Afl og Sjómannasamband Íslands.

Mitt helsta áhugamál er lestur góðra bóka og einnig er ég áhugamaður um málverkalist.

Ég legg áherslu á atvinnumál almennt og þá sérstaklega að stuðla að því að allar vinnufúsar hendur fái atvinnu og ég legg mjög ríka áherslu á að staðinn sé vörður um kaup, kjör og réttindi launþega. Efnahagsaðstæður í dag eru þannig að sjaldan eða aldrei hefur verið mikilvægara að verja stöðu launþega.




Anna María Ríkharðsdóttir5. sæti
Anna María Ríkharðsdóttir, bankastarfsmaður

Gift Einari Kristjánssyni og eigum við 4 börn og 3 barnabörn. Ég hef búið á Hornafirði síðan 1991.

Á kjörtímabilinu hef ég setið í skólanefnd og verið varamaður í félagsmálaráði.

Aðallega hef ég unnið við skrifstofu – og bankastörf í gegnum tíðina og verið ágætlega virk í félagsmálum m.a. með Slysavarnafélaginu Framtíðinni og Samtökum bankamanna

Mín helstu áhugamál eru ferðalög og matargerð. Helstu áherslur mínar í bæjarstjórn eru fjölskyldu - og velferðarmál.




Katarzyna Irena Thomas6. sæti
Katarzyna Irena Thomas, fiskvinnslukona

Ég er fædd í Piotrków Trybunalski í Póllandi árið 1977. Tvítug að aldri, eða árið 1997,  ferðaðist ég hingað og ætlaði að dvelja eitt ár. Það var bæði til að safna dálitlum peningum og einnig að skoða landið. Ég fékk vinnu í Borgey og nú vinn ég hjá Skinney-Þinganesi við fiskvinnslustörf. Strax í byrjun var ég heilluð af Íslandi og þá fyrst og fremst heimabænum mínum, ég fæ aldrei leið á stórkostlegu útsýni til jöklanna og sjávarins. Einnig líkar mér vel við þá heimamenn sem ég hef kynnst.

 Ég hef alla tíð látið umhverfi mitt mig varða og ég hef tekið þátt í kosningum hér nokkrum sinnum.Þegar til mín var leitað með að sitja á lista Samfylkingarinnar tók mig ekki langan tíma að slá til og vera með.

Ég er gift Grzegorz Krzysztof og við eigum tvær dætur 6 og 3 ára.Í viðbót við við þetta eru foreldrar mínir fluttir hingað líka. Núna er er því allt mitt sem ég get kallað svo, hér á Höfn og við unum okkur mjög vel.




Torfi_600x8007. sæti
Torfi Friðfinnsson, hafnsögumaður






RagnheidurSig_600x8008. sæti
Ragnheiður Sigjónsdóttir, sérfræðingur






Lars Jóhann Andrésson9. sæti
Lars Jóhann Andrésson, sundlaugarvörður og sjúkraflutningamaður





Berglind Steinþórsdóttir10. sæti
Berglind Steinþórsdóttir, ferðamálafræðingur og leiðbeinandi






Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir11. sæti
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður Afls






Kristín Gísladóttir12. sæti
Kristín Gísladóttir, fyrrv. skólastjóri






Erna Gísladóttir13. sæti
Erna Gísladóttir, leiðbeinandi






Ragnar Arason14. sæti
Ragnar Arason, fyrrverandi vélstjóri







  

  

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica