Samfylkingin
Kosningarmiðstöð Samfylkingarinnar
Kosningarmiðstöð Samfylkingarinnar
Allir velkomnir á kosningamiðstöð Samfylkingarinnar kl. 19 fimmtudaginn 27. maí á grill - og fjölskylduhátíð.JPG

Grill – og fjölskylduhátíð Samfylkingarinnar

Nú eru bara tveir dagar í kosningar. Merki þess að stutt er í kosningar verða greinilegri með hverjum deginum. Kosningabaráttan hefur verið stutt, snörp og málefnaleg og ber þess greinilega merki að sveitarfélaginu hefur verið vel stýrt á undanförnum árum.

Fimmtudaginn 27. maí kl. 19:00 ætlar Samfylkingin að bjóða bæjarbúum upp á grill – og fjölskylduhátíð við kosningamiðstöðina að Hafnarbraut 34. Boðið verður upp á dýrindis kjöt og meðlæti fyrir gesti og gangandi. Hoppukastali verður á staðnum fyrir yngstu kynslóðina. Gestur veislunnar verður Anna Margrét Guðjónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Frambjóðendur Samfylkingarinnar hlakka til að hitta kjósendur og eiga með þeim notalega kvöldstund. Þetta er kjörið tækifæri fyrir kjósendur til að rabba við frambjóðendur um stefnumálin og önnur málefni sveitarfélagsins. 

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica