Samfylkingin
Matthildur Ásmundardóttir
Matthildur Ásmundardóttir

Átak í uppbyggingu íþróttamannvirkja

Uppbygging íþróttamannvirkja hefur verið mjög áberandi undanfarið. Hér hefur risið fullkominn frjálsíþróttavöllur, glæsileg sundlaug, mótokrossbraut og nú hyllir undir gervigrasvöll og körfuknattleiksvöll á útisvæði.

Aðstaða er nú að verða til fyrirmyndar og er mikilvægt að vel sé haldið utan um þessi mannvirki í framtíðinni. Nú þegar aðstaðan er öll komin á sama stað nánast kallar það á flutning þjóðvegar í þéttbýli. Samfylkingin vill  að farið verði í þessar vegaframkvæmdir hið fyrsta svo þungaflutningar séu ekki við íþrótta- og skólasvæði Hafnar. Það má með sanni segja að lyft hafi verið grettistaki í aðstöðusköpun fyrir allt íþróttafólk í sveitarfélaginu.

Malbikaður göngustígur er nú meðfram strandlengjunni frá Silfurbraut og að Leiðarhöfða. Stefnt er að því að halda áfram þessari göngustígagerð í áföngum þannig að þegar henni líkur verður 21 km. langur göngu – og hjólastígur í kringum Höfn. Ánægjulegt er að sjá hve mikið fólk notar strax þennan göngustíg enda loksins komin línuskautabraut á Höfn!

Sorpmál

Mikið hefur áunnist í flokkun á sorpi á síðustu árum. Mikilvægt er að halda áfram þessari flokkun og stíga skrefið til fulls á næsta kjörtímabili þannig að sorp sem fer til urðunarverði minna með hverju árinu. Flokkun á sorpi skilar samfélaginu hagræðingu til lengri tíma því flokkað sorp er selt frá staðnum og við það skapast tekjur ásamt þeirri hagræðingu sem skapast með því að lengja líftíma holunnar góðu í Lóni. Í framtíðinni þarf að gera flokkun auðveldari með því til dæmis að bjóða upp á „grænar tunnur“ við hvert heimili, kynna betur ávinning flokkunar með kennslu og fræðslu til almennings og bæta aðstöðu í þjónustumiðstöð við Áhaldahús. Það er mikilvægt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð, staðsett í svo miklu návígi við Vatnajökulsþjóðgarð, að vera í fararbroddi í umhverfismálum. 

Forvarnarmál

Töluvert hefur verið rætt um forvarnarmál nú fyrir þessar kosningar. Æskulýðs- og tómstundanefnd sem undirrituð stýrði var lögð niður á miðju kjörtímabili og skiptust málaflokkarnir í kjölfarið á milli skólanefndar og menningarmálanefndar. Því hefur verið haldið fram að í kjölfar þessara breytinga hafi forvarnarstarfið gleymst hjá sveitarfélaginu. Það má ekki gerast vegna þess að forvarnarstarf er gríðarlega mikilvægt. Forvarnir eru á ábyrgð margra aðila: heimila, skóla, lögreglu, félagsmálayfirvalda, heilsugæslunnar, íþrótta- og tómstundafélaga o.fl. Samfylkingin leggur mikla áherslu á að auka samstarf allra þessara aðila með það að markmiði að styrkja forvarnarstarf í sveitarfélaginu.

 

Matthildur Ásmundardóttir

Skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica