Fjölbreytt tómstundastarf – öflugasta forvörnin
Forvarnir eru málaflokkur sem öll sveitarfélög ættu að gefa mikinn gaum. Þeim fjármunum, sem varið er til forvarna, er vel varið. Miklu nær er að tala um fjárfestingu því að með hverjum einstaklingi sem hægt er að forða frá glapstigum eiturlyfja og annarra fíkna skilar sér að lokum í sparnaði í heilbrigðis – og velferðarkerfinu.
En hverjar skyldu vera öflugustu forvarnirnar? Að mínu mati er öflugasta forvörnin sú að finna öllum hlutverk í samfélaginu – að allir hafi nóg við að vera. Forsenda þess er öflugt tómstunda – og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu og á þeim vettvangi er það hlutverk sveitarfélagsins að leita leiða til þess að gefa öllum börnum og unglingum tækifæri til að njóta sín. Í sveitarfélaginu er unnið mjög farsælt æskulýðs – og tómstundastarf á mörgum vígstöðvum. Íþróttastarf er með miklum blóma og tónlistar – og leikhússtarf er einnig kraftmikið. Þessum stoðum – og fleiri – ber að hlúa að áfram.
Allir hafi tækifæri til þátttöku
Þátttaka í tómstundastarfi reynist mörgum efnaminni fjölskyldum þungur baggi enda oft um kostnaðarsamt starf að ræða. Þess vegna á sveitarfélagið að halda áfram á þeirri braut, sem mörkuð var með upptöku tómstundakortanna, og lágmarka kostnað fjölskyldna við tómstundastarf. Að mínu mati er það beinlínis skylda sveitarfélagsins að leita allra mögulegra leiða til þess að gera öllum börnum og unglingum – óháð efnahag – kleift að stunda sín áhugamál – efnahagur má ekki hamla för. Of mikið er í húfi til þess að einhverjir þurfi að sitja hjá af fjárhagsástæðum.
Jaðargreinar mikilvægar
Metnaðarfullt starf félagsmiðstöðvar er nauðsynlegt til þess að gefa sem flestum, sem ekki finna sig í hefðbundnu íþrótta – og tómstundastarfi, tækifæri til að njóta sín. Stuðla þarf að auknu samstarfi félags – og íþróttasamtaka, félagsmiðstöðvar, skóla og sveitarfélags til þess að samfella náist í vinnudegi barna og unglinga. Við megum heldur ekki gleyma að hlúa að þeim greinum sem stundum eru kallaðar jaðargreinar, t.d. skotfimi og mótokross. Ekki finna sig allir í hinum hefðbundnu íþróttagreinum.
Með því að stuðla að fjölbreytni í tómstundastarfi innan sveitarfélagsins skapast forsendur fyrir því að allir – óháð áhugasviðum – geti fundið sér eitthvað við hæfi. Öll börn og unglingar eiga líka rétt á því að taka þátt í tómstundastarfi – óháð efnahag. Út frá þessum grunngildum á sveitarfélagið að vinna að framgangi æskulýðs – og tómstundamála og stuðla þar með að öflugu forvarnarstarfi.
Lars Jóhann Andrésson
Skipar 9. sæti á lista Samfylkingarinnar


