Velferðin varin og stærra hlutverk sveitarfélaga
Jafnaðarmenn um allan heim trúa því að forsendur hagvaxtar og hagsældar séu velferð, öryggi og jöfn tækifæri fólks. Norrænt velferðarsamfélag er enda sú þjóðfélagsgerð, sem best hefur staðist tímans tönn og efnahagsleg áföll. Að mati jafnaðarmanna er velferðarkerfið ekki afleiðing hagvaxtar heldur beinlínis forsenda hans. Vegna þessa grunngildis í lífssýn jafnaðarmanna er þeim best treystandi til að verja og hlúa að velferðarkerfinu.
Frá ríki til sveitarfélaga
Mikil umræða hefur farið fram um að auka hlutdeild sveitarfélaganna í velferðarþjónustunni. Unnið er að tilfærslu stórra málaflokka, líkt og málefna aldraðra, málefna fatlaðra og heilbrigðismála. Rökin fyrir tilfærslunni eru aukin valddreifing og að sveitarfélögin þekki staðbundnar aðstæður betur en fjarlægt ríkisvald. Sveitarfélögin hafa líka verið álitin líklegri til að nýta betur þá fjármuni, sem settir eru í þessa mikilvægu málaflokka, í þágu almennings. Önnur rök eru þau að með því að hafa sem mest af velferðarþjónustunni á einni hendi sé hægt að samþætta betur þau úrræði sem eru til staðar í dag – að til verði heildstæð velferðarþjónusta.
Sveitarfélagið Hornafjörður er lánsamt að hafa haft forræði á þessum stóru málaflokkum í gegnum þjónustusamninga. Mörg sveitarfélög líta öfundaraugum til þessa fyrirkomulags. Árangurinn rennir stoðum undir þá skoðun að farsælast sé að málaflokkunum sé sem mest stýrt heima í héraði.
Málefni fatlaðra
Nú hyllir undir að málefni fatlaðra flytjist alfarið yfir til sveitarfélaganna en stefnt er að því að það gerist um næstu áramót. Við yfirfærslu málaflokksins mun Sveitarfélagið Hornafjörður ekki lengur stýra starfinu í gegnum þjónustusamning heldur mun það taka við málaflokknum á sama grunni og önnur sveitarfélög. Mikilvægt er að vandað verði til verka þannig að þjónusta innan sveitarfélagsins skerðist ekki. Einnig verður að tryggja áframhaldandi forræði okkar yfir málaflokknum. Ekki er þó hægt að útiloka samstarf við önnur sveitarfélög enda geti það orðið til þess að bæta þjónustuna og efla faglegan stuðning.
Heilbrigðis – og öldrunarmál
Rekstur heilbrigðisstofnunarinnar hefur verið traustur á kjörtímabilinu en í kjölfar þeirra efnahagslegu áfalla sem dunið hafa yfir þjóðina er mikilvægasta verkefnið að verja grunnþjónustuna sem íbúar sveitarfélagsins njóta í dag. Opinberar stofnanir hafa óspart fundið fyrir niðurskurðarhnífnum að undanförnu og hann vofir ennþá yfir. Þar er Heilbrigðisstofnun Suðausturlands engin undantekning. Kjörinna fulltrúa bíður því það vandasama verkefni að halda forræði okkar yfir málalflokknum sem og að tryggja þá grunnþjónustu sem íbúar Hornafjarðar eiga rétt á. Samfylkingin mun leggja höfuðáherslu á þetta á næsta kjörtímabili. Ekkert svigrúm er til niðurskurðar á grunþjónustunni.
Stjórnvöld verða því – í öllum niðurskurðarhugmyndum – að vinna út frá því meginmarkmiði að allir landsmenn – óháð búsetu – eigi kost á öflugri heilbrigðisþjónustu og upplifi öryggi í sinni heimabyggð. Í samræmi við grunngildin í stefnu jafnaðarmanna mun Samfylkingin á Hornafirði því berjast fyrir jöfnum aðgangi allra landsmanna að grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins.
Guðrún Ingimundardóttir
Bæjarfulltrúi og skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar



