Stefnuskrá XD 2010
Sveitarstjórnarkosningar 2010
Bæklingur XDÁgætu Austur-Skaftfellingar
Í sveitarstjórnarkosningum þann 29.mai næst komandi gefst ykkur tækifæri til þess að velja forystu fyrir sveitarfélagið til næstu fjögurra ára. Með þessum bækling viljum við kynna þau málefni sem við leggjum áherslu á að vinna að.
Sjálfstæðisstefnan byggir á frumkvæði einstaklingsins en jafnframt á samtakamætti fólksins. Í þeim anda og góðu samstarfi við íbúana viljum við vinna að bættum búsetuskilyrðum.
Umhverfi okkar er bæði einstakt og viðkvæmt og mikilvægt að vernda. En jafnframt þarf að leita allra leiða til þess að nýta þá sérstöðu sem svo einstakt umhverfi hefur að bjóða.
Við leggjum áherslu á að umhverfi og aðstæður sveitarfélagsins verði áfram fjölskylduvænar og eftirsóknarverðar samhliða því að aðgát sé sýnd í fjármálum sveitarfélagisins.
Við þurfum fjölbreytt atvinnulíf, traustar undirstöðuatvinnugreinar, Áræðni í nýsköpum, öflugt tómstunda – og menningarlíf ásamt góðri almennri þjónustu á sem flestum sviðum.
Frambjóðendur D-listans
Við leggjum áherslu á:
- Sterkt atvinnulíf
- Öflug þjónusta
- Virðing fyrir náttúrunni
Við vinnum fyrir þig
Sterkt atvinnulíf
Sterkt atvinnulíf er ein mikilvægasta stoðin undir traustri búsetu í sveitarfélaginu. Tækfærin eru mörg og þau þurfum við að halda áfram að nýta bæði til sjávar og sveita. Með því sköpum við sterkara samfélag og fleiri tækifæri fyrir komandi kynslóðir til að finna atvinnu við hæfi.
Við viljum:
- Auka fjölbreytni atvinnutækifæra með því að ýta undir frjóa hugsum og styðja við nýjar hugmyndir
- Efla atvinnu- og rannsóknarsjóð sveitarfélagsins.
- Hlúa að þeim fyrirtækjum sem fyrir eru.
- Hafa nægt framboð af atvinnulóðum fyrir fjölbreytta starfsemi.
- Stjórnun Vatnajökulsþjóðgarðs flytjist í sveitarfélagið.
- Nýta þau tækifæri sem þjóðgarðurinn gefur í sátt við íbúa og umhverfið.
- Auka skilning á mikilvægi flugsamganga fyrir ferðaþjónustuna og íbúa sveitarfélagsins.
- Hornafjarðarflugvöllur geti tekið á móti minni farþegaflugvélum erlendis frá.
- Gera nauðsynlegar endurbætur á „gömlu slökkvistöðinni“ Húsnæðið verði nýtt undir safn Svavars Guðnasonar og einnig stærri fundi stjórnsýslunnar.
- Vinna að verkefninu Hafnarvík-Heppa með aðkomu einstaklinga
- Kanna möguleika á sérhæfðum söfnum í dreifbýli og þéttbýli
- Stuðla að betri möguleikum á nýtingu jarðhita til atvinnuuppbyggingar í öllu sveitarfélaginu.
- Styðja við fuglaskoðunarstöð Suð-Austurlands.
- Stórauka markaðssetningu sveitarfélagsins
Öflug þjónusta
Öflug þjónusta er hornsteinn samfélagsins Við eigum að standa vörð um yngstu og elstu aldurshópana jafnframt því að hlúa að þeim sem minna mega sín. Við viljum standa vörð um þá fjölbreyttu þjónustu sem veitt er í sveitarfélaginu. Góð menntun er undirstaða og börnin okkar eiga að fá þann stuðning sem hægt er að veita til að búa þau sem best undir framtíðina. Við viljum að málefni eldri íbúa sveitarfélagssins séu byggð á einstaklingsmiðaðri þjónustu þar sem valfrelsi er lykilatriði
Við viljum:
- Hagræðing án þess að það bitni á gæðum starfsins.
- Fara yfir fyrirkomulag skólamála.
- Hafa annan leikskólann opinn sem gæsluvöll á meðan sumarlokanir leikskólanna eru.
- Stóreflingu forvarnarmála
- Viðhalda þeirri fjölbreyttu flóru sem nú þegar er í íþróttamálum
- Efla félagsmiðstöðina , klúbbastarf , jaðaríþróttir
- Akstursíþróttir, skipulag og framtíð
- Hægt verði að halda kvikmyndasýningar
- Betri stýringu og fyrirkomulag á vinnuskóla
- Fylgja nýjum stefnum í húsnæðisúrræðum eldriborgara.
- Byggja kapellu og líkhús við heilbrigðisstofnunina
- Eldri borgarar geti búið sem lengst heima með öflugri heimaþjónustu
- Standa vörð um þjónustu í heilbrigðis- og öldrunarmálum
- Tryggja áfram forsjá yfir málaflokkum heilbrigðis og öldrunarmála auk málefna fatlaðra
- Taka næstu skref í uppbyggingu mannvirkja
-
- Innisundlaug
- Millibygging milli sundlaugar og Íþróttahúss
- Gagngerar breytingar á Heppuskóla
- Auka umferðaröryggi.
-
- Betri merkingar á götum
- Fleiri gangbrautir
- Færa þjóðveg í þéttbýli
- Ná niður umferðarhraða í íbúðargötum
- Sýnilegri löggæslu.
Virðing fyrir náttúrunni.
Í okkar fallega sveitarfélagi þarf að huga að skipulags og samgöngumálum í sátt við umhverfið. Góðar samgöngur eru lífæðar byggðarinnar hvort sem er í lofti, láði eða legi.
Við viljum:
- Klára yfirferð aðalskipulags
- Auka viðhaldsdælingu í höfninni í 35.000 rúmmetra
- Leggja meiri fjármuni og áherslu á rannsóknir á Grynnslunum
- Aðstöðu fyrir fjarðarbáta og kajaka
- Áframhaldandi uppbyggingu göngustíga
- Merkingar við göngustíga með upplýsingum og fræðsluskiltum
- Gerð verði gangskör í endurbótum á grænum svæðum.
- Ljúka við fráveitu í samræmi við áætlanir
- Stuðla að umhverfisvænni orkunotkunn í sveitarfélaginu með uppsetningu fjölorkustöðvar
- Aðgengi að rafmagni fyrir rafbíla á opnunartíma ráðhús
- Gerð verði bragarbót á leikvöllum í öllu sveitarfélaginu
- Laga aðgengi og aðstöðu á Melatanga


