Sjálfstæðisflokkur
Fjölskyldudagur Sjálfstæðisflokksins 2010
Fjölskyldudagur Sjálfstæðisflokksins 2010
Mynd 6 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

Fjölskyldudagur og lokaspretturinn

 

Fjölskyldudagur Sjálfstæðisflokksins var haldinn í gær annan í Hvítasunnu á Kaffi Horninu. Það var frábært að sjá hvað mikið af fólki mætti og veðrið lék við okkur. Frambjóðendur grilluðu pylsur og kjöt, og skelltu sér svo nokkrar ferðir í hoppuköstulunum sem vöktu mikla lukku hjá yngstu kynslóðinni.

Nú styttist óðum í kosningarnar en aðeins 4. dagar eru eftir. Þeir sem hafa einhverjar spurningar eða vilja leggja okkur lið á lokasprettinum, þá endilega lítið við á kosningaskrifstofunni  sem er á Kirkjubraut 3  en hún er opin frá 17-21 fram að kjördegi.

Skaftfellingur, félag ungra sjálfstæðismanna á Hornafirði, heldur svo grillkvöld í Pakkhúsinuá föstudagskvöld en þar verða frambjóðendur að kynna sín stefnumál fyrir unga fólkinu. Von er á Unni Brá, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, á grillkvöldið.

Við vinnum fyrir þig !

Sjálfstæðisflokkurinn í Austur-Skaftafellssýslu.

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica