Fortíð eða framtíð
Í gærkvöldi mætti ég á fund þar sem frambjóðendur í sveitarfélaginu Hornafirði komu saman. Þar flutti hver flokkur sína framsögu með sinni áherslu á málefnum sem liggja brýnast við í sveitarfélaginu að þeirra mati. Fyrir hönd Vg mætti Þórbergur Torfason og ég verð að segja það, að ég hef aldrei heyrt eins skrítna framsögu á ævinni. Í fyrsta lagi byrjaði hann á því að traðka niður hin framboðin og sér í lagi Sjálfstæðisflokkinn sem hann vildi þurrka út með öllu, vegna afreka þeirra í ríkisstjórn síðustu árin, með öllum þeim glundroða sem þar fylgdi.
Ég veit ekki til þess að hópur sá, sem er í framboði f.h Sjálfstæðisflokksins hér á Höfn í bæjarstjórnarkosningunum hafi hagað sér eins og fífl og stuðlað að hruni hins íslenska hagkerfis. Nei, ég held að íbúar Þórbergur, verði að gera greinarmun á ríkisstjórn landsins og bæjarstjórn einstaka sveitarfélaga.
Hinsvegar ef við horfum þá til ríkisstjórnar, þá hlýtur Þórbergur að vera virkilega stoltur af sínum mönnum sem setið hafa í ríkisstjórn síðastliðið árið. Þar hafa þeir verið gólfmottur Samfylkingarinnar sem stjórna landinu. Þar hafa Vg beygt sig og buktað NIÐUR fyrir grasrótina sína og þar hafa mörg þeirra gilda sem Vg fóru af stað með að leiðarljósi, fölnað og skrælnað eins og laufblöð og orðið aftur að moldu. Kannski táknrænt fyrir Vg?
Annars ætla ég ekki að hafa fleiri orð um það sem liðið er og ríkisstjórn landsins, því framundan eru bæjarstjórnarkosningar og það eru þær sem skipta máli í dag.
Við búum í góðu samfélagi, flest öll í sátt og samlyndi. Að vísu getur gott alltaf orðið betra, þangað stefnum við ótrauð áfram með hjálp íbúanna í sveitarfélaginu Hornafirði. Framtíðin er næsta skref.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins er góður kostur í komandi kosningum.
Við vinnum fyrir þig!
Herdís I. Waage
skipar 8.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Austur-Skaftafellssýslu.


