Heima er best !
Síðastliðið haust var ég ásamt manninum mínum að skoða hvort við ættum að flytjast heim á Höfn eða vera áfram í Grafarvoginum.Við ákváðum að skoða hvað Hornafjörður hefði upp á að bjóða.
Gervigras og innisundlaug
Þar sem við erum mikið áhugafólk um knattspyrnu byrjuðum við á því að skoða íþróttaaðstöðuna í bænum.Við vissum að það væri að koma gervigrasvöllur sem breytir aðstöðu fótboltans yfir vetrarmánuðina til muna. Það er gaman að sjá hvað Sindravellir breyttust mikið fyrir unglingalandsmótið og það styrkir stöðu okkar á íþróttasviðinu. Bygging nýrrar sundlaugar er mikil lyftistöng fyrir samfélagið og hefur aukið áhuga íbúa á sundiðkun. Við Sjálfstæðismenn viljum að ráðist verði í næstu áfanga í uppbyggingu sundlaugar. Innisundlaug er góður kostur fyrir fólk á öllum aldri. Þar er meðal annars. hægt að bjóða upp á ungbarnasund, sundleikfimi, skólasund auk þess sem nýta mætti hana til sjúkraþjálfunar. Ég var nú fyrir stuttu í vikuheimsókn í Reykjavík til að sonur minn 6 mánaða kæmist í ungbarnasund. Það hefði verið mun auðveldara að fá kennara hingað til okkar og halda hér hraðnámskeið. Þessi sundnámskeið eru fyrir börn þriggja mánaða til fimm ára. Með bættri aðstöðu til íþróttaiðkunnar aukast líkur á því að hver og einn finni sér íþrótt við hæfi. Besta forvörnin er að hafa börn í íþróttum og eigum við að gera allt til að hvetja börn og unglinga til að stunda íþróttir.
Grunnskólinn og Framhaldskólinn
Grunnskólinn er búin að taka miklum breytingum og hafa þessar breytingar lukkast mjög vel bæði fyrir kennara og nemendur. Kennararnir eru búnir að fá frábæra vinnuaðstöðu og nemendur þurfa ekki að fara langt til að sækja í íþróttir og sund.
Við erum með góðan framhaldsskóla á svæðinu og við verðum að vera dugleg að auglýsa hann til að reyna að ná í nemendur annarsstaðar frá. Að mínu mati þufum við að leggja ríka áherslu á að halda nemendum úr sveitafélaginu í FAS. Það er mikil kostur að geta klárað námið í sínum heimabæ og þar tala ég af eigin reynslu.
Afþreyingu fyrir ungt fólk
Sveitarfélagiðstarfrækir félagsmiðstöð fyrir nemendur í Heppuskóla en ekki fyrir Framhaldskólann. Ég hef rætt við nemendur skólans og heyrist mér á þeim að þeirra vilji sjá meira félagslíf. Það er spurning hvort ekki væri hægt að koma á samstarfi milli skólanna um klúbbastarf og námskeið. Ég fór á áhugaverða sýningu í Nýheimum þar sem Gunnhildur Stefánsdóttir hafði verið að kenna nemendum í Heppuskóla að sauma úr notuðum efnum og vakti þetta mikla lukku. Það hefði verið gaman að bjóða nemendum framhaldsskólans upp á þetta líka. Ég tel mikilvægt að hér verði hægt að bjóða upp á kvikmyndasýningar. Það er nauðsynlegt að reyna að koma á móts við ungu kynslóðina og bjóða þeim upp áhugaverða afþreyingu því þetta er jú allt forvörn.
Ég er mikil fjölskyldumanneskja og hef áhuga á öllu sem viðkemur henni t.d útvist og ferðalög. Æskulýðs og tómstundamál eru ofarlega í mínum huga. Ég vil leggja mitt af mörkum til að allir aldurshópar samfélagsins geti unað hag sínum vel í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Við vinnum fyrir þig !
Guðrún Ása Jóhannsdóttir skipar 2.sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Austur--Skaftafellssýslu.


