Frá bleyju til B.Sc
Mikilvægasta stoð hvers samfélags er mannauður. Íbúarnir eru því það sem gerir þetta sveitarfélag að því sem það er og framtíðina eigum við í börnunum.
Möguleikar til menntunnar í sveitarfélaginu eru til fyrirmyndar, það er ekki sjálfsagður hlutur að geta stundað allt sitt nám frá fyrstu sporum í leikskóla upp í nám á háskólastigi í sveitarfélagi sem telur um 2.100 manns.
Dvalartími á leikskólum er að lengjast
Hugmyndina um einn leikskóla heyrir maður úr öllum áttum. Hræðsla við að börn eigi erfitt með að kynnast þegar hópar af sitthvorum leikskóla koma upp í grunnskóla og inn í einn bekk. Ég held að það eitt sé ekki rök fyrir því að vera hér með einn leikskóla. En hvað væru þá rök með því? Ef börnum á leikskólaaldri fækkaði svo að erfitt væri að halda fagstarfi gangandi eða ef hægt væri að ná meiri hagræðingu með einum leikskóla svo að framlag til leikskólamála gætu nýst betur inn í starfið. Fækkun íbúa fylgir fækkun barna á öllum skólastigum, en samt hefur nýting leikskólaplássa ekki minnkað. Dvalartími barna á leikskólum hefur breyst og er að lengjast. Árið 2005 voru 132 börn samtals 768 klst á Krakkakoti og Lönguhólum eða að meðaltali 5,82 klst nú í vor eru það 107 börn í 721 klst að meðaltali 6,74. Langflest börn dvöldu í 4 klst á leikskóla árið 2005 eða 45% leikskólabarna en nú er algengast að börn séu í 8 tíma eða 39% . Því sýnist mér að skólarnir séu báðir í fullri nýtingu. En þó svo að við séum með tvo leikskóla er ekki þar með sagt að samvinna þar á milli í ákveðnum þáttum gæti ekki leitt til hagræðingar. Sem dæmi þá eru fæst börn á milli 16-17, þó þurfa samt að vera að lágmarki tveir starfsmenn á þeim tíma. Mín skoðun er sú að leikskólarnir gætu, þennan klukkutíma, sameinast á öðrum skólanum með börnin og væri þá einn starfsmaður frá hvorum skóla.
Mér finnst einnig umhugsunnarvert að dvalartími á leikskólum er að lengjast. Eru lífsskilyrði að breytast þannig að foreldrar leikskólabarna þurfa að vinna meira frá heimilinu í dag en var fyrir 5 árum? Í sveitarfélagi sem hefur lagt jafn mikla vinnu í mótun fjölskyldustefnu ætti þróunin þá ekki að vera önnur?
Grunnskóli
Sameining grunnskólanna hefur gengið vel. Breytingarnar á Hafnarskóla eru til fyrirmyndar og næsta skref er viðhald á Heppuskóla samhliða tengibyggingu á milli íþróttahúss og sundlaugar. Þó held ég að það hafi verið gerð mistök nú í vor þegar ráðinn var nýr skólastjóri til skólans. Held ég að farsælast væri að vera með einn skólastjóra í grunnskólanum og sem hefði sér til aðstoðar deildarstjóra í hvoru húsi. Tel ég að það sé bæði ruglingslegt út á við og þyngra stjórnunnarkerfi að vera með tvo skólastjóra.
Hlúa þarf að börnum í dreifbýli. Í Hofgarði hafa verið börn bæði í leikskóla og grunnskóla upp í 8.bekk, þetta skólaár hafi verið 11 börn í 1.-6.bekk. Það er oft flókið að skipuleggja nám þannig að öllum henti í svo fámennum skóla með þennan breiða aldur.
Lovísa Rósa Bjarnadóttir
4. sæti á lista Sjálfstæðisflokks



