Klapparstígur 25-27 101 RVK hvað er nú það?
Já það er von að maður spyrji sig, en ef einhver vill vita það þá er það höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs!!!! Já af öllum stöðum á landinu þá tókst Þórunni Sveinbjarnardóttur þá Umhverfisráðherra að bola niður í eitthvert dýrasta hverfi landsins og það ekki bara í Klapparstíg 25 heldur 27 líka. Þetta gengur nú alls ekki að ráðherrar Samfylkingar sjái nú ekki austur fyrir Ártúnsbrekku og halda að lífið snúist um 101 RVK. Væri nú ekki nær að þetta væri t.d. Litlabrú 1 780 en þar er ákaflega hentugt skrifstofuhúsnæði á annari hæð. Svo væri sennilega hægt að ráða einn ef ekki tvo landverði bara fyrir mismuninn á leiguverði. Þetta eru jú kanski bara tvö eða þrjú störf, en þessi stofnun á að vera í Sveitarfélaginu Hornafirði og fyrir því þarf að berjast.
Atvinnumálin
Atvinnumálin eru alltaf eitthvað sem varðar okkur öll og það er ekki sjálfgefið að hér sé þokkalegt atvinnuástand. Samningur um vatnsverksmiðju við Rolf Johansson er merki um gott framtak, en á sama tíma eru að tapast störf því miður. Best fiskur lokaði á kjörtímabilinu og búið er að segja upp öllum starfsmönnum hjá Ísfell þannig að þau störf sem vonandi skapast við vatnverksmiðjuna hafa nú þegar glatast . Vá steðjar jafnvel að fleiri fyrirtækjum , grátlegt það sem segir okkur að við þurfum alltaf að vera á tánum og tilbúin að taka slaginn þegar sóknarfæri gefast. Við höfum verið dugleg við að nýta færin í sambandi við ferðamannastrauminn, en eins og allir vita er það því miður bundið við 4-5 mánuði, byggja þarf upp öflugri vetrarferðamennsku hér. Það felast tækifæri í nærveru við Vatnajökulsþjóðgarð og vonandi eigum við eftir að koma auga á fleiri tækifæri til atvinnuuppbygginar því tengdu sem öðru.
Höfnin
Brýnt verkefni er að auka viðhaldsdælingu úr höfninni en hún er nú 25 þúsund rúmmetrar og þarf að auka hana í 35 þúsund rúmmetra því það virðist að höfnin grynnist æ hraðar og að sjálfsögðu er höfnin lífæðin okkar. Svo með góðri markaðsetningu hafnarinnar væri hægt að auka umferðina í henni t.d. með farþegaskipum og líka fiskiskipum sem myndi þýða meiri tekjur og fleiri störf.
Við vinnum fyrir þig !
Valdemar Einarsson. Skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðismanna



