Vel sóttur fundur með Bjarna Benediktssyni
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt súpufund á Kaffi Horninu í gær föstudag. Mikil áhugi var hjá Hornfirðingum á þjóðfélagsumræðunni og málum tengdum Sjálfstæðisflokknum.
Aðalumræðuefni fundarins var skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis og styrkjamálin. Formaður svaraði fyrirspurnum gesta og lagði áherslu á það að Sjálfstæðisflokkurinn skoraðist ekki undan ábyrgð sinni.
Ragnheiður Elín þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi kom með Bjarna og notuðu þau tímann hér á Hornafirði og heimsóttu fyrirtæki á staðnum.
Seinnipartinn var svo fundur í Sjallanum þar sem frambjóðendur fyrir sveitastjórnarkosningarnar áttu skemmtilegt samtal með gestunum áður en að þau héldu aftur til Reykjavíkur.



