Sjálfstæðisflokkur
Grétar Már Þorkelsson
Grétar Már Þorkelsson

Með nýju fólki koma nýjar hugmyndir

Grétar Már 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

 

Ég heiti Grétar Már Þorkelsson og skipa 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég er fæddur á Selfossi 1973 og bjó í Vestmannaeyjum til 10 ára aldurs en þá fluttist fjölskyldan á Selfoss. Ég útskrifaðist frá  Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri 1996 og fluttist þá hingað til Hornafjarðar með konunni minni, Nönnu Dóru Ragnarsdóttur sem er frá Akurnesi í Nesjum. Við búum á Höfn og eigum 4 börn. Ég starfaði hjá Austurleið fyrstu árin eftir að ég kom hingað, svo hjá flutningasdeild KASK og síðar í byggingarvinnu hjá Imstak ehf. Árið 2003 hóf ég störf hjá Búnaðarsambandi Austur- Skaftfellssýslu og eftir að gerður var samstarfssamningur milli Búnaðarsambands A.-Skaft. og  Búnaðarsambands Suðurlands í upphafi árs 2005 hef ég starfað hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Þá hef ég einnig starfað sem héraðslögreglumaður frá árinu 2002.

Mín helstu áhugamál varðandi sveitarstjórnarmál eru atvinnumál þá m.t.t. fjölbreytileika í atvinnulífinu. Ég tel það vera mjög mikilvægt að standa þétt við þá miklu atvinnunýsköpun sem hefur verið hér síðustu ár og þá á ég við þá aðila sem eru að koma á fót atvinnustarfsemi í stærri og smærri sniðum og eins þær stofnanir sem vinna með þessum aðilum t.d. Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Matís, Háskólasetrið o.fl. Málefni landbúnaðar eru mér einnig ofarlega í huga. Landbúnaður hér hefur verið mjög blómlegur ef miðað er við landbúnað almennt í landinu, uppbygging hefur verið allnokkur hér og nokkuð um að bændur séu í nýsköpun með afurðir sínar. Ég tel mjög mikilvægt að sveitarfélagið standi vörð um hagsmuni bænda í sveitarfélaginu svo þessi þróun haldi áfram.

Þá eru mér einnig ofarlega í huga æskulýðs- og tómstundamál. Ég tel að það sé nauðsynlegt að styðja við þá afþreyingu sem í boði er fyrir íbúa sveitarfélagsins og þá sem hingað koma ég tel það einnig nauðsynlegt að hafa augun opin fyrir nýjungum í þeim efnum.  Mín skoðun er sú að með fjölbreytileika í atvinnulífi og afþreyingu löðum við meira af ungu og hugmyndaríku fólki til búsetu í héraðinu.

Mér finnst gott að búa á Hornafirði, fólkið er jákvætt og umhverfið í alla staði aðlaðandi og þá sérstaklega til að ala upp börn.  Ég er mikill útivistarmaður og finnst mér umhverfið hér bjóða upp á ótal möguleika til útivistar og afþreyingar. Mér finnst mjög mikilvægt að sem flestir komi að því að móta samfélagið sem við búum í og í raun vera samfélagsleg skilda að koma að málefnum er snúa að samfélaginu á einn eða annan hátt og þess vegna gef ég kost á mér til komandi sveitarstjórnarkosninga.

Margt gott hefur áunnist á síðastliðnum árum og margt gott hefur verið gert. En með nýju fólki koma nýjar hugmyndir.

 

                                                                                  Með kveðju

                                                                       Grétar Már Þorkelsson

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica