Sjálfstæðisflokkur
Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn
Undirbúingur undir kosningar kominn í fullan gang
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga –  stefnumál og fleira.

Síðastliðinn sunnudag hélt Sjálfstæðisflokkurinn í Austur Skaftafellssýslu fund á Kaffihorninu.  Tilgangur þessa  fundar var að kynna frambjóðendur og greina frá helstu áherslum í undirbúningi fyrir sveitarstjórnarkosningar.

Á þriðjudag var fyrsti fundur í stefnumálum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Þar voru tekin fyrir menningar-, æskulýðs-  og tómstundamál. Mæting var góð og málefnin til umfjöllunar mörg.  Miðvikudag var fjallað um bygginga, skipulags og samgöngumál og í kvöld fimmtudag  verða skólamálin  á dagskrá og hefst fundurinn klukkan 20 í Sjallanum. Við Sjálfstæðismenn leggjum áherslu á að sem flestir komi að stefnumálavinnu til að stefnuskrá okkar komi sem best út.  Fundirnir verða sex talsins og þegar þeim lýkur munu frambjóðendur vinna að því að koma skránni í endanlegt form  áður en hún verður kynnt í lok mánaðarins. Eftir þá kynningu verður samt sem áður hægt að koma málefnum og tillögum að bættri og betri stefnuskrá áfram til frambjóðenda flokksins.

Nánari upplýsingar um stefnumálafundina og viðburði á vegum flokksins má sjá hér á heimasíðu flokksins www.rikivatnajokuls.is/xd.

 

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica