Sjálfstæðisflokkur
Guðrún Ása Jóhannsdóttir
Guðrún Ása Jóhannsdóttir

Guðrún Ása skipar 2.sæti á lista Sjálfstæðisflokkisins.

Kynning

Ég fæddist á Reyðarfirði árið 1980, bjó þar fyrstu fimm árin, næstu tvö í Kópavogi svo árið 1988 lá leiðin til Hornafjarðar. Ég útskrifaðist frá Framhaldsskóla Austur-Skaftafellsýslu árið 2000 af málabraut.
Var í nemendaráði skólans í tvö ár og seinna árið var ég formaður nemendaráðsins. Eftir stúdent vann ég eitt ár í Hafnarskóla sem umsjónarkennari 6. bekkjar ásamt því að þjálfa knattspyrnu fyrir stelpur, leikjabolta fyrir börn og starfsmaður Þrykkjunar.

Árið 2001 þá lá leið mín í höfuðborgina í Kennaraháskóla Íslands og lauk ég því námi 2004 sem grunnskólakennari. Þar sem Hornafjörður togar alltaf í mann þá kom ég  heim á sumrin til að vinna og vann m.a. sem verkstjóri í bæjarvinnunni árin 2003 og 2004.

Að námi loknu fór ég að vinna á leikskólanum Bakka sem deildastjóri á elstu deild og vann  þar þangað til í nóv 2009 að undaskildu einu ári þar sem ég kenndi við Korpuskóla.

Ég hef verið að þjálfa stelpur hjá Fylki í knattspyrnu ásamt því hef ég verið að mennta mig í knattspyrnuþjálfun og er komin með UEFA-B réttindi.

Árið 2005 hóf ég sambúð með Óla Stefáni Flóventssyni og eigum við einn strák saman sem er fæddur í nóvember árið 2009. Óli á fyrir tvo syni. Helstu áhugamál mín eru fjölskyldan, íþróttir og útivera.

Þar sem ég hef stundað knattspyrnuiðkun frá því ég var 10 ára þá eru æskulýðs- og íþróttamál ofarlega í mínum huga ásamt mennta- og skólamálum. Þar sem ég tel mig vera kraftmikla, skipulagða og jákvæða þá ætla ég að leggja mitt af mörkum til að gera gott sveitarfélag betra.

Með kveðju
Guðrún Ása Jóhannsdóttir  

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica