Sjálfstæðisflokkur
Fjölskyldudagur Sjálfstæðisflokksins 2010
Fjölskyldudagur Sjálfstæðisflokksins 2010

Tengibygging er ekki sama og tengibygging

Það er nokkuð líklegt að næsta stóra framkvæmd á vegum sveitarfélagsins verði að reisa millibyggingu á milli Heppuskóla og sundlaugarinnar. Misjafnt er hvaða aðstöðu menn vilja sjá að þessi bygging hýsi.

Undanfarið hafa sjálfstæðismenn rætt um hvaða starfsemi við vildum sjá þarna.  Við sjáum fyrir okkur að með því að reisa millibyggingu á tveimur hæðum milli sundlaugar og íþróttahúss  skapast rými fyrir fjölbreyttari þjónustu. Hægt verður að flytja saman á einn stað alla íþróttastarfsemi á Höfn. Við viljum sjá nýja búningsklefa, bæði karla og kvenna, aðstöðu fyrir nuddara,  kírópraktor, snyrtifræðing og aðra slíka þjónustu. Á efri hæð gæti verið salur fyrir líkamsrækt og tæki. Huga þarf að aðstöðu  fyrir kraftlyftingar. Með því  að færa heilsurækt og íþróttaaðstöðu sveitarfélagsins undir eitt þak vinnst margt. Hægt er að samþætta starfssemi íþróttahúss og sundlaugar og þannig skapast stærri vinnustaður. Ein afgreiðsla nýtist fjölþættri starfsemi. Íbúar sveitarfélagsins gætu keypt heilsuræktarkort sem gildir í alla líkamsrækt í húsinu hvort sem er í sund, íþróttasal, tækjasal eða leikfimi.

Betri aðstaða

Með vel hannaðri tengibyggingu er hægt að auka nýtingu á húsnæðinu til fjölbreyttari nota fyrir íbúa. Með betri aðkomu að stóru andyri verður húsið meira aðlaðandi fyrir ráðstefnuhald og stærri samkomur. Það myndi auk þess skapast betri framreiðsluaðstaða, þar sem núverandi aðstaða inní búningsklefum er óviðunandi.

Betra skólahúsnæði

Þessar framkvæmdir þarf að vinna samhliða því að farið verði í endurbætur á Heppuskóla og mynda heildræna mynd af íþrótta- og skólaaðstöðu bæjarins. Húsnæði Heppuskóla er farið að kalla á gagngert viðhald og er mikilvægt að fari fram mikil endurskipulagning á húsnæðinu með framtíðarsýn að leiðarljósi. Það vantar matsal og betri aðstöðu fyrir kennara og starfsfólk skólans. Einnig þarf að bæta setustofu nemenda og endurnýja húsgögn.

Viljum hvetja alla til að nýta kosningarétt sinn og mæta á kjörstað á laugardag, hvert atkvæði skiptir máli.  Með því að setja X við D á kjördag ertu að tryggja bjarta framtíð sveitarfélagsins, við vinnum fyrir þig og náum árangri.

Guðrún Ása Jóhannsdóttir
2.sæti á lista Sjálfstæðisflokks

Lovísa Rósa Bjarnadóttir
4.sæti á lista Sjálfstæðisflokks

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica