Fjölskyldudagur og lokaspretturinn
Fjölskyldudagur Sjálfstæðisflokksins var haldinn í gær annan í Hvítasunnu á Kaffi Horninu. Það var frábært að sjá hvað mikið af fólki mætti og veðrið lék við okkur. Frambjóðendur grilluðu pylsur og kjöt, og skelltu sér svo nokkrar ferðir í hoppuköstulunum sem vöktu mikla lukku hjá yngstu kynslóðinni.
Nú styttist óðum í kosningarnar en aðeins 4. dagar eru eftir. Þeir sem hafa einhverjar spurningar eða vilja leggja okkur lið á lokasprettinum, þá endilega lítið við á kosningaskrifstofunni sem er á Kirkjubraut 3 en hún er opin frá 17-21 fram að kjördegi.
Skaftfellingur, félag ungra sjálfstæðismanna á Hornafirði, heldur svo grillkvöld í Pakkhúsinuá föstudagskvöld en þar verða frambjóðendur að kynna sín stefnumál fyrir unga fólkinu. Von er á Unni Brá, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, á grillkvöldið.
Við vinnum fyrir þig !
Sjálfstæðisflokkurinn í Austur-Skaftafellssýslu.


