Sjálfstæðisflokkur
Lovísa Bjarnardóttir
Lovísa Bjarnardóttir

Frá bleyju til B.Sc

Mikilvægasta stoð hvers samfélags er mannauður. Íbúarnir eru því það sem gerir þetta sveitarfélag að því sem það er og framtíðina eigum við í börnunum.

Möguleikar til menntunnar í sveitarfélaginu eru til fyrirmyndar, það er ekki sjálfsagður hlutur að geta stundað allt sitt nám frá fyrstu sporum í leikskóla upp í nám á háskólastigi í sveitarfélagi sem telur um 2.100 manns.

Dvalartími á leikskólum er að lengjast
Hugmyndina um einn leikskóla heyrir maður úr öllum áttum.  Hræðsla við að börn eigi erfitt með að kynnast þegar hópar af sitthvorum leikskóla koma upp í grunnskóla og inn í einn bekk. Ég held að það eitt sé ekki rök fyrir því að vera hér með einn leikskóla. En hvað væru þá rök með því? Ef börnum á leikskólaaldri fækkaði svo að erfitt væri að halda fagstarfi gangandi eða ef hægt væri að ná meiri hagræðingu með einum leikskóla svo að framlag til leikskólamála gætu nýst betur inn í starfið. Fækkun íbúa fylgir fækkun barna á öllum skólastigum, en samt hefur nýting leikskólaplássa ekki minnkað. Dvalartími barna á leikskólum hefur breyst og er að lengjast. Árið 2005 voru 132 börn samtals 768 klst á Krakkakoti og Lönguhólum eða að meðaltali 5,82 klst  nú í vor eru það 107 börn í 721 klst að meðaltali 6,74. Langflest börn dvöldu í 4 klst á leikskóla árið 2005 eða 45% leikskólabarna en nú er algengast að börn séu í 8 tíma eða 39% . Því sýnist mér að skólarnir séu báðir í fullri nýtingu. En þó svo að við séum með tvo leikskóla er ekki þar með sagt að samvinna þar á milli í ákveðnum þáttum gæti ekki leitt til hagræðingar. Sem dæmi þá eru fæst börn á milli 16-17, þó þurfa samt að vera að lágmarki tveir starfsmenn á þeim tíma. Mín skoðun er sú að leikskólarnir gætu, þennan klukkutíma, sameinast á öðrum skólanum með börnin og væri þá einn starfsmaður frá hvorum skóla. 
Mér finnst einnig umhugsunnarvert að dvalartími á leikskólum er að lengjast. Eru lífsskilyrði að breytast þannig að foreldrar leikskólabarna þurfa að vinna meira frá heimilinu í dag en var fyrir 5 árum? Í sveitarfélagi sem hefur lagt jafn mikla vinnu í mótun fjölskyldustefnu ætti þróunin þá ekki að vera önnur?

Grunnskóli
Sameining grunnskólanna hefur gengið vel. Breytingarnar á Hafnarskóla eru til fyrirmyndar og næsta skref er viðhald á Heppuskóla samhliða tengibyggingu á milli íþróttahúss og sundlaugar.  Þó held ég að það hafi verið gerð mistök nú í vor þegar ráðinn var nýr skólastjóri til skólans. Held ég að farsælast væri að vera með einn skólastjóra í grunnskólanum og sem hefði sér til aðstoðar deildarstjóra í hvoru húsi. Tel ég að það sé bæði ruglingslegt út á við og þyngra stjórnunnarkerfi að vera með tvo skólastjóra.
Hlúa þarf að börnum í dreifbýli. Í Hofgarði hafa verið börn bæði í leikskóla og grunnskóla upp í 8.bekk, þetta skólaár hafi verið 11 börn í 1.-6.bekk. Það er oft flókið  að skipuleggja nám þannig að öllum henti í svo fámennum skóla með þennan breiða aldur.

Lovísa Rósa Bjarnadóttir
4. sæti á lista Sjálfstæðisflokks

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica