Sjálfstæðisflokkur
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins er komin á netið
Eftir mikla vinnu og aðkomu fjölda manns er stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins komin á netið, sjá hér. Stefnuskráin er opið plagg og verður það áfram fram að kosningum. Þeim sem finnst einhverju við að bæta eða vilja koma og ræða málin við okkur er bent á að kosningaskrifstofa okkar að Kirkjubraut 3 er opin virka daga frá kl.19-21. Frambjóðendur flokksins eru á staðnum og taka vel á móti hverskonar fyrirspurnum og eru allir velkomnir.
Við viljum einnig minna á sameiginlega framboðsfundi allra framboðanna sem fram fara á Hrolllaugsstöðum í Suðursveit á morgun þriðjudag kl 20:30 og í Nýheimum miðvikudag kl 20:00.Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins.


