Sjálfstæðisflokkur
Valdemar Einarsson
Valdemar Einarsson
Valdemar Einarsson

Stöndum vörð um ferðasjóð ÍSÍ

 

Nú þegar niðurskurður í ríkisfjármálum er í algleymingi verðum við íbúar í Sveitarfélaginu Hornafjörður að standa vörð um ferðasjóð ÍSÍ.  Fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það sjóður sem veitir styrki til þeirra íþróttafélaga sem lengst þurfa að fara til að stunda keppni í sinni grein. Þetta á þó eingöngu við um ferðir á Íslandsmót.  UMF.Sindri fékk um 2,3  milljónir úthlutaðar fyrir síðasta ár sem skiptist á þær  deildir sem keppa á Íslandsmótum.   Þessi sjóður var stofnaður til reynslu í þrjú ár og er sá tími nú liðinn.  Við verðuð að berjast fyrir því að þessi sjóður verði ekki lagður niður því ef svo fer leggst aukin kostnaður beint á iðkendur og íþróttafélögin.   Notum því öll tækifæri til að þrýsta  á stjórnvöld um að veita áfram fé til sjóðsins.

Við vildum gervigras á  Sindravelli

Á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar lögðum  við  til að aðalleikvangurinn á Sindravöllum yrði gervigrasvöllur. Af hverju gerðum við það? Jú hagkvæmari fjárfesting fyrir sveitarfélagið og notkunargildi vallarins mun meira. Á þeim tíma hefði kostnaðurinn verðið um 30 milljónum krónum meiri en að setja venjulegt gras. Þetta vildi núverandi meirihluti ekki gera, heldur er farið í það núna  að byggja hálfan völl sem kostar meira en  öll uppbygging Sindravalla árið 2007.  Ég talaði um það á sínum tíma í ljósi reynslunnar af vellinum að þetta yrði sparifrímerki sem ekki mætti anda á og hefur það orðið raunin. Má þar nefna að stjórn Sindra lendir yfirleitt í töluverðu þrasi um að spila leiki í Íslandmótum fyrir yngri flokkana.  Vissulega er þörf á þessum gervigrasvelli  sem nú er unnið að þar sem ekki var farið alla leið 2007, en gaman hefði verið að sjá þessum fjármunum varið í millibyggingu við sundlaug og Íþróttahús en vonandi kemst sú bygging á koppinn  næsta kjörtímabil. 

Forvarnir, breytingar á nefndum.

Á  kjörtímabilinu var Æskulýðs og tómstunarráð lagt niður og sett undir Menningarnefnd og nafni hennar breytt í Menningar- og tómstundarráð. Tel ég það hafi ekki tekist sem skildi.  Þegar svona breytingar eru gerðar þarf að skipa að nýju í hina nýju nefnd. Það er tilfinning mín að  æskulýðsmálunum var hreinlega ýtt til hliðar innan nefndarinnar og er ég ekki einn um þá skoðun. Forvarnarmál hafa algjörlega runnið út af borðinu sem er áhyggjuefni. Þetta hefur m.a.sýnt sig í auknu brottfalli ungmenna úr íþróttastarfinu. Við viljum að þessum málaflokki  verði sinnt almennilega  því ekki má slaka á í forvörnum. 

Við vinnum fyrir þig !

Valdemar Einarsson. Skipar 3. sæti á lista Sjálfstæðismanna

 

 

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica