Sjálfstæðisflokkur
Yfirsmiðirnir og flott útsýni
Yfirsmiðirnir og flott útsýni
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

Súpufundur á Kaffi Horninu

 

Súpufundur

Sjálfstæðisflokkurinn í Austur Skaftafellssýslu bauð upp á súpufund í gær á Kaffihorninu.  Björn Ingi oddviti Sjálfstæðismanna fór yfir starfið og stefnumálin. Mæting var góð og fundarmenn duglegir að ræða stefnumálin en þau munu birtast hér á vefnum.

Öræfaferð

Eftir súpufundinn lögðu Björn Ingi, Lovísa, Maríanna  og Valdi  af stað í sveitaferð en meiningin var að heilsa upp á Öræfinga. Þar verða eflaust mörg málefni sem brenna á mönnum og ekki laust við að aðrir félagar hafi öfundað þau á því að fá að fara í þessa ferð en það er alltaf gaman að kíkja á bændur sérstaklega þegar sauðburður stendur sem hæst.

Vinnudagur

Um síðustu helgi var mikið um að vera hjá okkur. Vinnudagurinn lukkaðist ljómandi vel. Klæðning var keypt á pallinn og borið í hann. Þakkantur endurbyggður næst götunni en hann var farinn að láta verulega á sjá. Nú á eftir að setja járnið á hann og lagfæra hina hliðina. Framkvæmdum í kringum húsið okkar er þó aldeilis ekki lokið því endurnýja þarf járn á stöfnum, lagfæra bílaplan og fleira.

Kosningaskrifstofa

Á sunnudag opnuðum við kosningaskrifstofuna með pompi og prakt. Unnur Brá  þingmaður Sjálfstæðisflokksins kom til okkar í tilefni dagsins og mætingin var góð.

Að lokum viljum við vekja athygli á því að kosningaskrifstofan okkar er opin frá 19-21 alla virka daga og hægt er að senda fyrirspurnir til frambjóðenda á xd@hfn.is .

Skrifstofan okkar er á heitasta staðnum í bænum við göngustíginn nýja og hjá okkur er flottasta útsýnið.

Við vinnum fyrir þig !

Sjálfstæðisflokkurinn í Austur Skaftafellssýslu.

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica