Sjálfstæðisflokkur
Sjálfstæðisflokkurinn
Sjálfstæðisflokkurinn
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Stefnumálin, kynningar og starfið framundan hjá Sjálfstæðisflokknum

Stefnumálin, kynningar og starfið framundan hjá Sjálfstæðisflokknum

 

Um miðjan mánuðinn hófust stefnumálafundir hjá Sjálfstæðisflokknum. Fundirnir  voru alls sex og lauk þeim síðasta í gærkvöldi.  Þetta voru vel sóttir og málefnalegir  fundir þar sem margar góðar áherslur komu fram.  Frambjóðendur setjast nú niður með þau málefni sem var rætt og koma með hugmynd að málefnalista sem  Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að stefna að eftir kosningar.  Allar ábendingar til frambjóðenda eru velkomnar og þá  er  bara að setja sig í samband við frambjóðendur eða senda fyrirspurn til frambjóðenda á netfangið xd@hfn.is .

Á lista Sjálfstæðisflokksins eru nokkur ný andlit og því leggjum við áherslu á það að kynna þá frambjóðendur vel.  Breiddin er góð þarna eru meðal annara; kennari, búfræðingur, rafiðnaðarfræðingur, trillukarl, leikskólakennari, nemi,  verslunarstjóri, ferðaþjónustubóndi  og framkvæmdarstjórar,  allt hörkuduglegir  og efnilegir einstaklingar reiðubúnir til að starfa fyrir samfélagið okkar. 

Kosningaskrifstofan opnar 8.maí með pompi og prakt en það verður auglýst nánar þegar nær dregur. Þann dag verður einnig vinnudagur í Sjallanum, en skipta þarf um þakkant, bera í pallinn og fleira. Semsagt líf og fjör hjá okkur í Sjálfstæðisflokknum og skemmtileg kosningavinna framundan, þar sem við setjum markið hátt og stefnum að því að ná aftur inn þriðja manni í bæjarstjórn.

Bestu kveðjur og gleðilegt sumar !

Sjálfstæðisfélag
Austur Skaftafellssýslu

 

Senda grein

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica