Lovísa Rósa skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
Undirrituð skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningum í vor og langar að nota tækifærið og kynna sig fyrir kjósendum og íbúum sveitarfélagsins.
Ég er 33 ára gömul og er alin upp hér í sveitarfélaginu, ef frá eru talin 5 ár (1983-1988) sem fjölskyldan bjó í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu.
Eftir grunnskóla fór ég eitt ár sem skiptinemi til Montreal í Kanada og var þar með tónlist og frönsku sem aðalgreinar. Ég lauk stúdentsprófi frá FAS 1999 af náttúrufræðibraut og þar var ég einn vetur formaður í nemendaráði skólans. Á skólaárunum vann ég ýmis störf í verslun-, veitinga- og ferðaþjónustustörfum með skóla og milli anna.
Ég er gift Jóni Kjartanssyni og eigum við tvo syni Bjarma Þey (9 ára) og Sindra Blæ (7 ára). Við búum í Nesjum og þaðan rekum við, ásamt fleirum, verktakafyrirtækið Rósaberg ehf. Þá er Rósaberg helmingseigandi í Dýpkunnarfélaginu Trölla ehf, þar sem ég er stjórnarformaður. Samhliða fyrirtækjarekstri og barnauppeldi fór ég í fjarnám við Háskólan á Bifröst og útskifaðist þaðan í febrúar 2009 með Diploma í fjármálum og stjórnun.
Einnig er ég formaður kvenfélagsins Vöku og stjórnarmaður í Sunddeild Sindra.
Nú er rúmur mánuður er þar til gengið verður að kjörboðinu, flokkar og frambjóðendur fylla síður vef- og prentmiðla til að kynna sig og málefni sín. Það er gott og kjósendur þurfa ekki síður að kynnast frambjóðendum en málefnum. Góð mál og hugmyndir að betra sveitarfélagi geta horfið ef kjörnir fulltrúar okkar fylgja þeim ekki alla leið.
Við búum í góðu samfélagi sem hefur alla burði til að vera stórkostlegt. Grunnatvinnuvegi s.s. sjávarútveg, landbúnað og ferðaþjónustu verður að styrkja og vernda í þeim óróa og óvissu sem hvílir á landinu öllu. En ég tel að við þurfum líka að hlúa að sprotunum og undirbúa jarðveginn svo að þeir nái að festa hér rætur og vaxa og dafna um ókomin ár. Við þurfum að laða að okkur kraftmikla einstaklinga og félög sem geta bætt samfélagið og aukið fjölbreyttni í atvinnulífinu.
Við horfumst líka í augu við þá staðreynd að fólki hefur fækkað í sveitarfélaginu og börnum á leik- og grunnskólaaldri með. Þetta er þróun sem ég vil sjá snúið við og þar tel ég að fjölbreytnir atvinnumöguleikar geti leikið stórt hlutverk, þó það eitt og sér leysi ekki vandan. Þá er ég ekki að mælast fyrir því að sveitarfélagið sem slíkt setji í gang verksmiðjur og stofni fyrirtæki heldur miklu frekar að umhverfið sé tilbúið að taka við þeim sem vilji koma, svæði séu vel skilgreind og aðgengi bætt.
Að lokum vil ég hvetja alla kjósendur til að mæta á kjörstað og velja sína fulltrúa til að stýra sveitarfélaginu næsta kjörtímabil.
Með kveðju
Lovísa Rósa Bjarnadóttir



