Stefnuskrá

Stefnuskrá XB 2010

Stefnuskrá Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra fyrir sveitastjórnarkosningarnar 29. maí 2010.


Banner_XB_val


Velferðarmál

Fjölskyldan er mikilvægasta eining hvers samfélags. Margskonar samsetning og ólíkar þarfir kalla á sveigjanlega þjónustu í fræðslu-, heilbrigðis, íþrótta- og æskulýðsmálum.

Leiðarljós okkar er  samábyrgð um velferð fjölskyldunnar í  samfélagi án aðgreiningar.

Skólamál

 Á Hornafirði er rekið metnaðarfullt skólastarf á öllum skólastigum, þar sem áhersla er lögð á samfellu í námi, námsárangur, vellíðan og jákvæð samskipti.

Leiðarljós okkar í skólamálum er virðing, samvinna og samkennd.

Við leggjum áherslu á að:

  • fylgt verði eftir þeim breytingum sem gerðar hafa verið í leik- og grunnskóla og starfsemi þeirra styrkt enn frekar
  • framtíðarsýn verði mótuð um list- og verkgreinahús
  • mörkuð verði stefna um viðhald Heppuskóla og vinna hafin
  • breytingum á tónskólanum verði lokið svo að húsnæðið nýtist sem best fyrir starfssemina    
  • stefnt verði að áframhaldandi lækkun í gjaldtöku fyrir leikskóla, lengda viðveru, skólamáltíðir og íþrótta- og tómstundaiðkun barna og unglinga.

Málefni fatlaðra, heilbrigðis- og öldrunarmál

Forræði yfir heilbrigðismálum er á hendi sveitarfélagsins og góð samvinna er við aðrar heilbrigðisstofnanir.  Grunnþjónusta er veitt á sviði heilbrigðis- og fötlunarmála með miklum sóma og vel er hugað að nýtingu fjármuna.

Leiðarljós okkar í heilbrigðismálum eru lífsgæði.

Við leggjum áherslu á að:

  • gerður verði þjónustusamningur um rekstur HSSA á grundvelli þess samnings sem unnið er eftir í dag með það markmið að viðhalda núverandi þjónustustigi
  • halda forræði sveitarfélagsins í málefnum fatlaðra
  • HSSA verði leiðandi á sviði lýðheilsu íbúa sveitarfélagsins
  • efla heimaþjónustu og tryggja sjálfstæða búsetu sem lengst
  • unnin verði stefnumótun í málefnum aldraðra
  • þrýst verði á framkvæmdir við fyrirhugaða viðbyggingu við hjúkrunar- og sjúkradeild
  • brugðist verði við þeirri þjónustuþörf sem upp kann að koma í málefnum sjúkra, aldraðra og fatlaðra.

 

Íþrótta- og æskulýðsmál

Forvarnagildi íþrótta og lýðheilsu er mikið.  Með upptöku tómstundakorts hafamöguleikar barna og unglinga til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi verið jöfnuð.  Bylting hefur orðið í aðstöðu til íþróttaiðkunnar á síðustu árum s.s. með tilkomu nýrrar sundlaugar, uppbyggingar  á Sindravöllum, mótokrossbrautar og reiðskemmu við Stekkhól.

Leiðarljós okkar er fjölbreytt aðstaða til íþrótta og tómstundaiðkunar fyrir alla fjölskylduna.

Við leggjum áherslu á að:

  • móta stefnu í æskulýðs- og tómstundamálum með eflingu í huga
  • efla forvarnarstarf á breiðum grunni með þátttöku íbúa
  • auka samstarf milli félagsmiðstöðvar, skóla, félagasamtaka og foreldra
  • að stuðlað verði að festu og samfellu í skipulagi skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs
  • stutt verði áfram við tómstundaiðkun barna og unglinga með eflingu tómstundakorts

Atvinna og nýsköpun

Traust og ábyrg fyrirtæki sem bjóða fjölbreytt atvinnutækifæri eru hornsteinn byggðar í hverju samfélagi.  Hlutverk sveitarfélagsins er að skapa aðstæður til þróunar og eflingar atvinnulífs á jafnræðisgrunni.  Slíkt hefur verið gert m.a. með stuðningi við stofnanir, samstarfs- og frumkvöðlaverkefni, með stofnun Atvinnu- og rannsóknarsjóðs

Leiðarljós okkar er fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir ólíka einstaklinga á öllum aldri í sjálfbæru samfélagi.

Við leggjum áherslu á að:

  • vinna áfram að þróunar- og samstarfsverkefnum sem ýtt hefur verið úr vör s.s. í ferðaþjónustu, smáframleiðslu matvæla, skapandi greinum og fleiri sviðum atvinnulífsins
  • halda áfram rannsóknarvinnu í samstarfi við Siglingastofnun og Verkís á sviði orkuöflunnar
  • halda áfram rannsóknum á jarðhita og hagnýtingu hans
  • áframhaldandi vinnu við undirbúning vatnsútflutnings í samstarfi við Rolf Johansen hf
  • endurmeta stuðning við ferðaþjónustuna og samþætta starfsemi Upplýsingamiðstöðvar
  • vinna heildstæða markaðs og kynningaráætlun fyrir sveitarfélagið
  • einstaklingar fyrirtæki og stofnanir verði hvött til þess að flytja hingað starfssemi sína eða hluta hennar eða stofna til nýrra
  • áframhaldandi vinnu við þróun og hagnýtingu tækifæra samfara stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs
  • unnið verði markvisst að flutningi stöðu framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs heim í hérað
  • efnt verði til átaksverkefna fyrir atvinnuleitendur í samstarfi við Vinnumálastofnun
  • að framtíð Atvinnu- og rannsóknasjóðs metin með hliðsjón af árangri

 

Hafnarmál

Höfnin er lífæð sjávarútvegsins, eins af grunnatvinnuvegum sveitarfélagsins.  Rekstur hafnarinnar stendur styrkum fótum.  Jafnt og þétt hefur verið unnið að viðhaldi og endurbótum hafnarmannvirkja og rannsóknum á innsiglingu.    Hafin er markaðssetning hafnarinnar með móttöku farþegaskipa í huga.

Leiðarljós okkar er framsækin höfn í þágu atvinnulífs.

Við leggjum áherslu á að:

  • rannsóknarvinnu á Grynnslum haldið áfram í samstarfi við Siglingastofnun með það að markmiði að auka dýpi og siglingaöryggi
  • áfram verði fylgst grannt með dýpi innan hafnarinnar svo umferð sé ávallt hindrunarlaus
  • halda áfram lagfæringu á umhverfi hafnarinnar

 

Skipulags- og umhverfismál

Skipulagsmál

Aðalskipulag er skipulagsáætlun sveitarstjórnar þar sem kemur fram stefna um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar og aðgengis að þjónustu í sveitarfélaginu, án þess að ganga á rétt komandi kynslóða.  Með kortlagningu náttúruauðlinda m.a. samhliða gerð verndaráætlunar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð hefur verið lagður grunnur að skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda.

Leiðarljós okkar er virðing fyrir stórbrotinni náttúru, starfi genginna kynslóða og að skapa svigrúm fyrir fjölbreytta búsetu og framsækna atvinnusköpun. 

Við leggjum áherslu á að:

  • ljúka vinnu við endurskoðun á aðalskipulagi með þátttöku íbúa
  • Höfn haldi sérstöðu sinni hvað varðar landslag, víkur og flóa
  • forgangsmál er að breyta legu þjóðvegar í þéttbýli og færa af Hafnar- og Víkurbraut
  • stemma stigu við hraðakstri í þéttbýli
  • framkvæmdir við nýjan kirkjugarð við Réttarkletta verði hafnar á árinu 2011
  • varðveita sérstakt landslag og ræktunarland í sveitarfélaginu
  • landeigendur vinni deiliskipulag vegna mannvirkjagerðar og byggingarframkvæmda
  • staðið verði við gefin loforð varðandi framkvæmdir við Hornafjarðarfljót og þær hefjist svo fljótt sem unnt er
  • unnið verði að nauðsynlegum undirbúningi vegna gerðar jarðganga undir Lónsheiði og þrýst á um framkvæmdir  
  • þrýst verði á framkvæmdir við fækkun einbreiðra brúa í sveitarfélaginu
  • vinnu við girðingar meðfram þjóðvegi 1 verði haldið áfram í samstarfi við Vegagerðina
  • hjóla- og gönguleiðir ásamt reiðvegum verði hafðar í huga við skipulagsgerð
  • allir íbúar í dreifbýli eigi kost á háhraðatengingum á jafnræðisgrunni
  • grannt verði fylgst með landbroti af völdum sjávar og jökulvatna

 

Umhverfismál

Með markvissri fræðslu um verðmæti óspilltrar náttúru, umgengni um náttúruauðlindir og nýtingu þeirra, ásamt úrbótum í móttöku á hvers konar úrgangi, hefur verið stuðlað að vitundarvakningu meðal íbúa og fyrirtækja.  Ferðaþjónusta, landbúnaður og sjávarútvegur byggja tilvist sína öðru fremur á hreinu og ómenguðu umhverfi. Fjölbreyttir möguleikar til útivistar, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli, auka á lífsgæði. 

Leiðarljós okkar er skynsamleg nýting náttúruauðlinda, hreint og ómengað umhverfi með fjölbreyttum möguleikum til útivistar fyrir alla. Í umhverfismálum bera allir ábyrgð. 

Við leggjum áherslu á að:

  • unnin verði umhverfisstefna fyrir sveitarfélagið og stofnanir þess
  • haldið verði áfram útfærslu á frekari flokkun og móttöku á endurvinnanlegum úrgangi
  • haldið verði áfram fyrirhuguðum framkvæmdum við fráveitu á Höfn og fyrir Nesjahverfi
  • opnum  svæðum og fasteignum í eigu sveitarfélagsins verði sýndur sómi með gróðursetningu, betri umhirðu, viðhaldi og uppsetningu leiktækja 
  • áfram verði unnið að lagfæringu og gerð áningarstaða og gönguleiða í sveitarfélaginu
  • gerð verði áætlun um viðhald og lagfæringu gangstétta í þéttbýli með aðgengi fyrir alla í huga
  • opinbera hreinsunardaga í sveitafélaginu
  • ljúka vinnu við endurskoðun deiliskipulags við Tjarnarlund, svæðisins sunnan sundlaugar, það tengt íþróttasvæði og gert aðlaðandi með bekkjum, leiktækjum og gróðri
      

Stjórnun og fjármál

Traust og örugg fjármálastjórnun er forsenda framkvæmda. Sveitarfélagið Hornafjörður er kraftmikið, velrekið sveitarfélag.  Virðing er borin fyrir vinnu starfsmanna og athöfnum íbúa.  Greining tækifæra, stefmótun með þátttöku starfsmanna og íbúa og markviss miðlun upplýsinga eykur á trúverðugleika og skipar sveitarfélaginu í hóp framsækinna sveitarfélaga sem eru eftirsótt  til búsetu og lífsgæði eru mikil.

Leiðarljós okkar er traust og örugg fjármálastjórn, hagsýni og ráðdeild

 

Við leggjum áherslu á að:

  • Hjalti Þór Vignisson, núverandi bæjarstjóri verði ráðinn bæjarstjóri næsta kjörtímabil
  • verja eins og kostur er hag fjölskyldna og fyrirtækja í gegnum þrengingar í efnahagslífi Íslands
  • áfram verði stuðst við rammaáætlanir við rekstur sveitarfélagsins
  • skipting skatttekna milli ríkis og sveitarfélaga verði í stöðugri endurskoðun
  • að unnið verði að flutningi vænlegra verkefna frá ríki heim í hérað og nægt fjármagn fylgi með
  • að unnið sé markvisst eftir innkaupareglum sveitarfélagsins

 

Framkvæmdir og eignir

Stýringu framkvæmda sveitarfélagsins þarf að haga með þeim hætti að ekki ríki stöðnun á vinnumarkaði. Íbúðir og aðrar fasteignir í eigu sveitarfélagsins taki mið af þörfum hverju sinni.

Leiðarljós okkar er að ásýnd eigna sveitarfélagsins verði til sóma og öðrum til eftirbreytni

 

Við leggjum áherslu á að:

  • undirbúningur verklegra framkvæmda sé vandaður
  • að viðhaldsáætlanir verði uppfærðar reglulega og unnið samkvæmt þeim
  • skoðað verði hvernig auka megi framboð á íbúðarhúsnæði á frjálsum leigumarkaði
  • kannaðir verði kostir þess að ráðast í tengibyggingu milli íþróttahúss og sundlaugar
  • haldið verði áfram sölu eigna ef hagkvæmt þykir
     

Menningar og tómstundamál

Mikill auður er fólginn í öflugu starfi félagasamtaka og einstaklinga á sviði menningar og lista.  Menningarmiðstöð Hornafjarðar er þjónustustofnun, sem m.a. í samstarfi við einstaklinga, atvinnulíf og félagasamtök varðveitir menningararf og stuðlar að fjölbreyttu lista og tómstundalífi og gerir aðgengilegt fyrir íbúa og gesti. 

Leiðarljós okkar er öflugt og skapandi menningarstarf og fjölbreytt úrval viðburða fyrir alla aldurshópa, sem gefur ólíkum einstaklingum tækifæri til samvistar, vaxtar og þroska

 

Við leggjum áherslu á að:

  • efla lista- og tómstundastarf ungs fólks
  • efla menningartengsl við erlenda íbúa sveitarfélagsins
  • Svavarssafn, Listasafn Hornafjarðar verði opnað í nýjum sýningarsal árið 2011
  • vinna að framgangi hugmyndar um “Hafnarvík – Heppu” í samstarfi við einkaaðila
  • Eldsmiðjan;  Menningar- og hagleikssetur á Mýrum verði að veruleika í samvinnu við íbúa
  • Varðveita og skrá þá þekkingu, sem safnað hefur að undanförnu með varanlegum hætti

 


Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica