Framsókn
Efstu menn á lista Framsóknar
Efstu menn á lista Framsóknar
Ásgrímur, Ásgerður, Kristján og Reynir

Með þakklæti í huga

 

Að loknum sveitarstjórnarkosningunum er okkur frambjóðendum Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu kjósenda sem sýndu okkur á ótvíræðan hátt traust til forystu í stjórn sveitarfélagsins næstu fjögur árin. Ennfremur þakklæti til allra þeirra sem veittu okkur margvíslega aðstoð og hvatningu við undirbúning kosninganna.

Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa undir þeim miklu væntingum sem gerðar eru til okkar nú í upphafi nýs kjörtímabils.  Með samvinnu að leiðarljósi göngum við til þeirra fjölmörgu verkefna sem bíða okkar.

Við þökkum frambjóðendum annarra flokka drengilega kosningabaráttu, óskum þeim velfarnaðar og vonumst til að eiga gott samstarf við kjörna fulltrúa þeirra hér eftir sem hingað til.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica