Þitt atkvæði skiptir máli.
Fulltrúar Framsóknar hafa unnið að krafti og öryggi að öllum verkefnum á síðasta kjörtímabili með hagsmuni íbúa sveitarfélagins að leiðarljósi. Um það vitna verk okkar hvert sem litið er. Við erum stolt af þeim hvort sem horft er til þjónustu við íbúa , framkvæmdir eða stuðning við atvinnulíf, menningar- og félagsstarf.
Undanfarnar vikur hafa frambjóðendur verið faraldsfæti. Íbúar í sveitum heimsóttir, farið í vinnustaðaheimsóknir og spjallað við kjósendur á förnum vegi. Hvarvetna höfum við mætt góðu viðmóti og fundið mikla ánægju íbúa með starfið á liðnum árum.
Áherslur okkar fyrir næsta kjörtímabil hafa verið dregnar saman í tíu punkta sem dreift var á öll heimili. Þær eru tíundaðar nánar í ítarlegri stefnuskrá, sem birt hefur verið á vefnum og liggur frammi á kosningaskrifstofu. Íbúar hafa verið duglegir við koma með innlegg um það sem þeim þykir betur mega fara og fögnum við slíkum ábendingum. Samvinna við íbúa, starfsmenn sveitarfélagsins og aðra kjörna fulltrúa er okkur mikilvæg, hér eftir sem hingað til.
Nú er komið að lokum frábærrar kosningabaráttu. Kjördagur er í dag. Við viljum hvetja kjósendur til að taka málefnalega afstöðu til verka okkar og þeirrar framtíðarsýnar sem við höfum lagt fram. Við treystum því að þú verðir ekki í vafa um hvert atkvæði þitt fer að þessu sinni og setjir X við B. Þitt atkvæði skiptir máli.



