Framsókn
Konukvöld í Framsókn
Konukvöld í Framsókn

Hressar konur og humarsúpukvöld

Það var stuð og stemning þegar kátar og hressar konur sem hittust í gærkvöldi, á konukvöldi Framsóknar, sem haldið var í Kaupfélagshúsinu. Mæting fór langt fram úr björtustu vonum en talnaglöggar konur telja að liðlega 100 konur hafi átt þarna saman yndislega kvöldstund.  Eins og vera ber voru margvísleg málefni rædd og gafst gott tækifæri til að spyrja út í helstu áherslur í málefnum sveitarfélagsins næstu árin.   Skvísurnar í Framsókn þakka fyrir frábæra þátttöku.

Undanfarnar vikur hafa frambjóðendur verið faraldsfæti.  Íbúar í sveitum voru heimsóttir, farið í vinnustaðaheimsóknir og spjallað við kjósendur á förnum vegi.  En nú er komið að lokum frábærrar kosningabaráttu og í tilefni þess verður boðið upp á humarsúpu á kosningaskrifstofu Framsóknar í kvöld.  Frambjóðendur verða að sjálfsögðu á staðnum til að svara spurningum kjósenda og vilja þeir hvetja sem flesta til að mæta.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica