Framsókn
Ottó Marvin Gunnarsson
Ottó Marvin Gunnarsson
Skipar 11. sæti á lista Framsóknarmanna

Opið bréf til unga fólksins

Ottó Marvin heiti ég.  Faðir minn Gunnar Ingi hefur starfað sem lögreglumaður, knattspyrnuleikmaður og rekið fyrirtækið Öryggi og Gæsla.
Móðir mín Kristín Jónsdóttir er Suðursveitungur og hefur starfað sem gjaldkeri sýslumanns síðast liðin ár og auk þess lagt gjörva hönd á fjölmörg önnur störf. 

Ég hef búið á Hornafirði alla mína ævi og kvíði þess að flytja burt til að áfram halda námi mínu.  Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík og haft sterkar skoðanir sem ég hef reynt að framfylgja af krafti.  Mér er annt um sveitarfélagið mitt og er mjög heiðraður af þeim forréttindum að geta tekið þátt í að móta það til framtíðar.  Ég sit í Ungmennaráði  sem vinnur að verkefni sem kallast „Evrópa unga fólksins“ og er megin markmið þess verkefnis að auka lýðræði æskunnar.

Hlustað  á unga fólkið

Ég hef alltaf verið ófeiminn við að láta í mér heyra.  Ég hef ávallt átt auðvelt með að ræða mál sem mér eru nær.  Mér finnst ekki erfitt að leita til fólks sem ég þekki ekki neitt og bið um þá aðstoð sem ég þarfnast.  Ég geri mér fulla grein fyrir því  að ekki er það svoleiðis fyrir alla.  Þess vegna er mikilvægt að til séu auðveldar leiðir fyrir unga fólkið til að hafa áhrif á málefni sveitarfélagins og koma  sínum sjónarmiðum að.  

Margir eru feimnir og telja sig ekki nógu málefnalega til að ávarpa fólk með skoðunum sínum.  Ég sjálfur hafði áhyggjur af því þegar ég hóf fyrst að blogga og tjá skoðanir mínar á pólitískum vettvangi, en komst fljótt af því að innihald málefna skipti meira máli en útfærslan á því.  Ég tel að ekki allir geri sér grein fyrir hversu auðvelt það er fyrir þá að hafa áhrif.  Ég veit t.d. að með því að senda bæjarstjóra bréf, getur þú verið handviss um að efni bréfsins verði lesið af bæjarstjóra sjálfum og að hann muni svara þér persónulega og þínu málefni hefur verið komið að.

Á marga vegu er Hornafjörður kominn langt á veg hvað varðar það að hlusta á sjónarmið og færa vald þeirra sem ekki einu sinni hafa aldur til að kjósa.  Í gegnum árin og þá sérstaklega s.l. áratug hefur starfsfólk bæjarins verið samansafn að kraftmiklu og opnu fólki sem hefur  gert æskunni auðvelt að láta í sér heyra.  Tökum sem dæmi bæjarstjórann okkar.  Ég er enn  mjög gagntekinn af því  hversu fljótt hann brást við og auðvelt var að eiga við hann viðtal, þegar hann boðaði okkur félagana  til sín, eftir að við höfðum ávarpað bæjarráð  til að beina athygli að því að orsök dalandi tónlistalífs á Hornafirði mætti rekja til aðstöðuleysis fyrir hljómsveitir.  Þar var skjótt brugðist við og enn í dag er verið að vinna að því að fullkomna viðmót tónlistarlífs og ég get fullyrt að vel verður staðið að þeim málum.  

Sveitarfélagið Hornafjörður er sveitarfélag á hraðri uppleið.  Ný og ný atvinnutækifæri spretta upp.  Ég vill benda unga fólkinu á að VIÐ erum framtíðin.  Við erum þau sem tökum við stýrinu einn daginn og þess vegna skiptir máli fyrir ungt fólk í dag að benda í þá átt þar sem það vill seinna meir vera statt þegar það tekur við stýrinu. 

 

Að kjósa rétt er ekki hvar þú setur X-ið

Hver hefur ekki heyrt því otað að fólki í kosningum, að það verði að kjósa rétt. Setja X  við a,B,c,d,e,f,g....   En þú lætur ekki annað fólk taka ákvarðanir fyrir þig, um hvað þér finnst.  Það skiptir máli hvar þú setur X-ið, og nú beini ég orðum mínum beint að öllum nýkjósendum sem lesa þetta.   Allir hafa sínar skoðanir,  sama hvort þeir viti það nákvæmlega eða ekki.  En sá sem segir „ég hef enga skoðun á einhverju svona“  hefur  oftar en ekki skoðun á einhverju máli sem tekið er upp í stefnuskrám flokkana.

Til þess að kjósa rétt eigið þið að kynna ykkur stefnu flokkana.  Ég fór þá leið að ég blandaði mér inní þetta og hafði mitt að segja um hvernig stefna Framsóknar  er  og er ég sáttur við mína vinnu.  Þetta hefur verið skemmtilega lífsreynsla með skemmtilegu fólki og er ég stoltur af sjálfum mér fyrir að hafa tekið þetta skref og látið í mér heyra og komið  mínum skoðunum alla leið inná stefnuskrá.  Tilfinningin er ólýsandi.  Sveitastjórnakosningar eru algjörlega svart og hvítt á við Alþingiskosningar.  Stefna framboða í sveitarstjórnarmálum tekur mið af nærsamfélaginu.  Ég hvet alla til að kynna sér stefnuskrár framboðanna og bera þær sama.  Það sem á best við þig, sama hvað flokkurinn heitir, þann flokk áttu að kjósa.  Ef það er gert, þá megið þið vera fullviss um að þið hafið kosið rétt. 

Ég gef ykkur þessi ráð

Það er þó nokkuð augljós hvert mitt atkvæði fer að þessu sinni.  Þar sem ég hef þumalungana mína í, er að sjálfsögðu þar sem ég vill vera.  Ég gef ykkur þessi ráð, því ég trúi að með þessari  leið rati X-ið ykkar á réttan stað og innst inni trúi ég að eftir lestur og pælingar, verði  X-ið ykkar fyrir framan B. Ég hef traust í stefnu Framsóknar- og stuðningsmanna og tel okkur hafa í sameiningu mótað veg sem stefnir á þann stað,  sem ég tel mig fúsan til að taka við stýrinu.  Í sveitarfélaginu sem ég vill búa í alla mína ævi.

Ottó Marvin Gunnarsson, skipar 11. sæti á lista Framsóknar og stuðningsmanna.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica