Framsókn
Kósýkvöld fyrir konur
Kósýkvöld fyrir konur
Úr myndasafni

Einmitt í kvöld – konukvöld hjá Framsókn

Vonandi hefur það ekki farið fram hjá neinum að það er einmitt í kvöld, fimmtudaginn 27. maí, klukkan 20.30 sem verður konukvöld á kosningaskrifstofu Framsóknar í Kaupfélagshúsinu.  

Eftir reglulega skemmtilega en annasama daga að undanförnu ætlum við að eiga notalega kvöldstund og  hafa það gaman saman. Við hlökkum til að hitta sem flestar konur og spjalla við þær um framtíð sveitarfélagsins, sem svo sannarlega er björt.  Skvísurnar á framboðslista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra láta sig flest varða og þú kemur ekki að tómum kofunum hjá þeim.  Velferðarmál, athafnir eða upplifun.  Allt þetta líta þær á sem nauðsynlegan þátt í lífsgæðum fjölskyldunnar. 

Konuspjall, ljúfir tónar og huggulegheit í Kaupfélagshúsinu er eitthvað sem engin kona lætur framhjá sér fara.  Og munum að saman hafa konur oft lyft grettistaki, það sannar sagan okkur.

Skvísurnar í Framsókn

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica