Arna Ósk Harðardóttir
5. sæti á lista Framsóknarmanna
Ég heiti Arna Ósk Harðardóttir og skipa 5. sæti á lista Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra í komandi sveitarstjórnarkosningum. Ég er borin og barnfæddur Hornfirðingur, er gift Þórhalli Einarssyni og saman eigum við 3 börn. Ég er formaður frjálsíþróttadeildar Sindra og hef verið „fótboltamamma“ í mörg ár.
Á síðastliðnum árum hefur orðið mikil uppbygging á íþróttamannvirkjum hér í sveitarfélaginu. Við eigum flottan 9 holu golfvöll, þar sem fallegasta útsýni landsins fær að njóta sín. Við eigum hér afar glæsilega sundlaug sem er stolt okkar Hornfirðinga. Einnig er frjálsíþróttavöllurinn allur hinn glæsilegasti og með tilkomu gervigrasvallarins sem byrjað er á, á knattspyrnuiðkunin eftir að breytast til batnaðar. Einnig er verið að reisa reiðhöll við félagssvæði hestamannafélagsins. Íþróttavöllurinn við Mánagarð hefur mikið verið notaður til fótboltaiðkunar og einnig hefur Umf. Máni staðið fyrir frjálsíþróttamótum þar á hverju sumri. Mótocrossbrautin stendur fyrir sínu þó svo að aðgengi að henni mætti laga og til stendur að koma upp körfuboltavelli við íþróttahúss. Við félagsheimili sveitanna eru íþrótta og leikvellir og til stendur að laga aðstöðu við Holt á Mýrum.
Við getum öll verið samála um að íþrótta- og tómstundaiðkun barna og unglinga er ein besta forvörn sem við höfum. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að styðja vel við uppbyggingu íþrótta-og tómstundastarfs í sveitarfélaginu okkar. Með því að bjóða uppá sem fjölbreyttasta afþreyingu í íþróttum og tómstundum barna og unglinga fáum við einnig ungt fólk til að líta á Hornafjörð sem vænlegan kost til að búa á og ala upp börn. Með tilkomu frístundakorts hefur einnig verið komið til móts við barnafólk.
Á undanförnum árum hefur undirrituð starfað töluvert mikið með börnum og unglingum bæði í kringum mitt starf sem formaður frjálsíþróttadeildar Sindra en einnig í kringum tómstundir minna eigin barna. Ég tók mikinn þátt í Unglingalandsmótinu 2007 og Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum á s.l. ári. Báðir þessir viðburðir gengu mjög vel og höfum við fengið mikið lof fyrir alla umgerð og skipulagningu. Ég hef fengið að fylgjast með því hvernig börnin í sveitarfélaginu okkar þroskast og dafna í gegnum sín áhugamál. Við eigum hér heilan auð, bæði af íþrótta og tónlistarmönnum og okkur ber skylda til að standa við bakið á þeim í þeirra starfi. Þessir krakkar okkar geta nánast allt bara ef við styjum við þau og hvetjum þau áfram.
Mín framtíðasdýn er sú að hér á Hornafirði verði komið upp einhverskonaar tómstundamiðstöð fyrir ungt fólk. Þar gæti verið æfingaaðstaða fyrir hljómsveitir, klúbbastarf og fleira. Þetta er eitthvað sem myndi hvetja ungt fólk í sveitarfélaginu til frumkvæðis og ábyrgðar og þar með efla forvarnarstarf í mikið.
Kæri kjósandi. Með því að setja x við B í komandi sveitarstjórnarkosningum stuðlar þú að áframhaldandi bættri íþrótta-og tómstundamenningu í sveitarfélaginu.
Arna Ósk Harðardóttir



