Framsókn
Snæfríður Hlín Svavarsdóttir
Snæfríður Hlín Svavarsdóttir
Skipar 6. sæti á lista Framsóknarmanna

Hvað ungur nemur . . .

 

Mikið hefur áunnist.

Góður árangur hefur verið í flokkunarmálum hjá Sveitafélaginu undangengið kjörtímabil en betur má ef duga skal. Í dag er hægt að flokka án þess að hafa áhyggjur af því að allt fari í sömu holuna og sífellt fleiri flokkar bætast við sem hægt er að endurvinna. Margir eru samviskusamir og flokka allt, aðrir flokka minna. Það er misjafnt hvað við leggjum af mörkum en lítið er betra en ekkert. Alltaf er hægt að bæta sig og ein leiðin til þess að fá fleiri með í liðið er að gera allt aðgengi til flokkunar betra fyrir fólkið. Svarið gæti verið fleiri gámastöðvar í hverfum eða fleiri tunnur við hvert heimili en það þarf einnig að lágmarka kostnað því það eru jú íbúar og fyrirtæki sem greiða kostnaðinn með sorpgjöldum. Einnig er mikilvægt að bæta aðstöðu fólks til að losa sig við garðaúrgang og í nánustu framtíð að finna hentuga leið til að jarðgera allan lífrænan úrgang.

 

Líka í sveitinni.

Nokkrum sinnum á ári eiga bændur þess kost að láta sækja til sín notað rúlluplast og ferðaþjónustufyrirtæki sem koma sér upp eigin flokkunarstöð fá losað úr henni án gjalds. Slíkt er gert til að leitast við að jafna aðstöðumun fyrirtækja í þéttbýli og dreifbýli. Í stað sérstaks hreinsunarátaks á járni og timbri, þá flakkar gámur um sveitir þar sem hægt er að losa sig við þess konar úrgang og árlega er farin ein ferð að sækja spilliefni til þeirra sem þess óska.

 

Hvað ungur nemur, gamall temur.

Leik- og grunnskólabörn sem kynnast því hvað það er að flokka, endurvinna og endurnýta eru mun líklegri til að temja sér jákvæð vinnubrögð í þeim efnum þegar þau verða eldri. Þau eru líka dugleg að minna okkur sem eldri erum á að það er sjálfsagt að flokka. Gott starf er unnið á þessum skólastigum Sveitarfélagsins sem er mjög jákvætt og ber Umhverfisviðurkenning 2009 til leiksólanna þess glöggt vitni.  Í öllum úrgangi leynast einnig verðmæti sem okkur ber að nýta sem allra best, þess vegna flokkum við.

Snæfríður Hlín Svavarsdóttir, skipar 6. sæti á lista Framsóknarmanna og stuðningsmanna þeirra.

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica