Framsókn
Ásgrímur Ingólfsson
Ásgrímur Ingólfsson

Atvinnumál

 

Það sem búið er

Atvinnumál eru trúlega þau mál sem flestir hugsa um þessa dagana,  margir eru hugsi yfir sinni stöðu og óttast um sína vinnu. Við framsóknarmenn höfum verið með formennsku í atvinnumálanefnd þetta kjörtímabil og höfum á þeim vettvangi stutt við marga góða hluti. Ekki ætla ég þó að þakka okkur alla þá miklu drift sem verið hefur í samfélaginu því bæði hafa bændur verið hugmyndaríkir við að skapa sér aukatekjur og eins hafa íbúar í þéttbýlinu prófað sig áfram með ýmsar nýjungar. Það hefur greinilega verið sáð í frjósaman jarðveg með Atvinnu- og rannsóknarsjóðnum og gaman hefur verið að fylgjast með því hvað sú starfsemi sem fram fer í Nýheimum hefur nýst vel til að styðja við þær mörgu og góðu hugmyndir sem fram hafa komið. Þar hefur fólk ekki komið að tómum kofanum, eins og sést á þeim hugmyndum sem komið hafa þaðan og fylgt hefur verið úr hlaði með hjálp góðra manna.

 

Nútíðin   

Það er einkennilegt ef okkur Íslendingum finnst að það sem ógni tilveru okkar mest séu stjórnvöld en ekki náttúran í landinu eins og verið hefur frá því að land byggðist. Eftir alla þá dýrðar daga þegar rjómann draup af hverju strái og allt flæddi hér  í peningum sem engin vissi hvaðan komu eða hvert fóru, er það lausn okkar háu herra að dauðrota mannskapinn. Forsetinn og Katla eru gengin í lið saman gegn ferðaþjónustunni, Jóhanna og Steingrímur ætla að sjá um restina með aðgerðarleysi, þó ekki nógu miklu þar sem þau virðast líta á að það sé betra  að gera illt en ekkert. Heimilin og fyrirtækin standa illa undir þeirri skattpíningu sem ríkið stendur fyrir og sú hagfræði sem rekin er í landinu að skattleggja okkur út úr kreppunni er að mínu mati jafnvitlaus og sú hagfræði sem kom okkur í þessi vandræði, þ.e. að lækka skatta í uppsveiflu og þenslu. Þær öfgar sem við Íslendingar erum að ganga í gegnum, fyrst of langt til hægri og nú alltof langt til vinstri er slagur sem við verðum trúlega að taka áður en við sameinumst á miðjunni. Þetta er sá raunveruleiki sem við okkur blasir og við komum til með að takast á við á næsta kjörtímabili.

 

Framtíðin

Næstu fjögur ár gætu orðið þau afdrifaríkustu fyrir sveitafélagið í langan tíma. Við kjörnir fulltrúar verðum að vera á tánum yfir hverju einasta útspili stjórnvalda, hvort sem það verða aðgerðir til eflingar nýsköpunar og smáiðnaðar eða aðgerðir sem ógna undurstöðuatvinnugreinum okkar. Héðan í frá eins og hingað til munum við framsóknar menn leitast við að efla smáiðnað og auka fjölbreytni atvinnutækifæra í sveitarfélaginu, iðnaður og þjónusta munu eflast með hagsæld íbúanna. Sú stóra ógn sem að okkur stefnir að mínum dómi er sú trú sumra að með inngöngu í Evrópubandalagið muni þetta lagast og það sé ekkert annað sem við þurfi að gera. Ef hornfirskur landbúnaður, ferðaþjónusta og sjávarútvegur fær vinnufrið til að byggja sig en betur upp og þróast, mun störfum í iðnaði, þjónustu og afleiddum störfum fjölga, kaupmáttur samfélagsins aukast og hagsæld íbúanna allra verða með því besta sem þekkist á landinu.        

 

Ásgrímur Ingólfsson.

Fjórði maður á lista framsóknarflokksins í sveitarstjórnarkosningum í Hornafirði

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica