Framsókn
Kristján Guðnason
Kristján Guðnason

Fjölbreyttar forvarnir

Ég heiti Kristján S. Guðnason og er 5 barna faðir og giftur.  Áhugasvið mitt liggur einmitt í því að gera Hornafjörð að aðlaðandi og fjölskylduvænum bæ, þar sem framtíðin skiptir okkur mestu máli.  Við þurfum að tryggja öryggi og velferð ungmenna sem mest og það gerum við með því að efla íþróttaiðkun, tómstundir og forvarnir.

Efla þarf  forvarnir.

Við þurfum að gefa forvarnarmálum betri gaum. Það gerum við meðal annars með því að efla grasrótina og stofna áhugamannahóp sem myndi einbeita sér að nýjungum og stóreflingu í forvörnum.  Ég hef undanfarið staðið fyrir söfnun fjármagns til kaupa á  fíkniefnaleitarhundi sem myndi styrkja stöðu lögreglunar hér á staðnum.  Hundurinn hefði mikinn fælingarmátt en myndi einnig nýtast í forvarnarvinnu. Þennan hund mætti einnig þjálfa sem sporleitarhund sem myndi efla björgunarsveitina. Einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök hafa tekið þessu með eindæmum vel og liggur ákvarðanatakan nú hjá ríkisvaldinu, en dómsmálaráðherra hefur verið kynnt málið.

Fjölbreyttar tómstundir

Mikil áhersla hefur verið á uppbyggingu íþróttamannvirka á yfirstandandi kjörtímabili þannig að eftir því hefur verið tekið á landsvísu og mikill sómi að. Frjálsíþróttavöllur var tekinn í notkun fyrir Unglingalandsmótið 2007, ný sundlaug vígð fyrir réttu ári og framkvæmdir við gervigrasvöll standa yfir. Af þessu leiðir að öll aðstaða til íþróttaiðkunar hefur tekið miklum stakkaskiptum. Rökrétt áframhald þessarar uppbyggingar tel ég vera að reisa millibyggingu milli íþróttarhúss og Heppuskóla á næsta kjörtímabili. Neðri hæð myndi hýsa tækjasal til lyftinga og þrekþjálfunar og á efri hæð sé ég fyrir mér Félagsmiðstöð unglingana sem yrði þá á forræði skólans. Fyrir því og öðru í þessum málaflokkum mun ég beita mér af festu og áræðni sem og öðrum störfum sem mér verða falin.

Kristján S. Guðnason,

Skipar 3. sæti á lista Framsóknar og stuðningsmanna þeirra.   

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica